Heimsmarkmiðin.Ísland. Þrjú Norðurlandanna tróna á toppnum á nýjum lista yfir frammistöðu aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í því að framfylgja Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun.
Finnland er í fyrsta sæti, Svíþjóð í öðru sæti og Danmörk í því þriðja. Noregur er í sjöunda sæti en Ísland er nokkuð langt á eftir eða í fimmtánda sæti af 167 ríkjum, sem úttektin náði til.
Einkunn Íslands er 80.79 en 100 þýðir að öllum Heimsmarkmiðunum hafi verið náð.
Toppeinkunn:
Ísland fær toppeinkunn í fimm af markmiðunum sautján eða #1 engin fátækt, #7 aðgangur að sjálfbærri orku, #9 nýsköpun og uppbyggin, #10 minnkun ójöfnuðar og #16 friður og réttæti.
Falleinkunn:
Í fjórum markmiðanna hefur Ísland ekki staðið sig sem skyldi. Það eru #2 útrýma hungri, tryggja fæðuöryggi og bætta næringu og stuðla að sjálfbærum landbúnaði, #12 ábyrg neysla og framleiðsla, #13 loftslagsaðgerðir og #15 líf á landi.
Þótt árangur Íslands í að ná markmiði númer tvö sé slakur þýðir það þó ekki að hungur ríki á Íslandi – öðru nær. Offita er eitt þeirra atriða sem dregur Ísland niður, og mikil notkun köfnunarefnis í landbúnaði.
Innan markmiðsins um ábyrga neyslu er Ísland á niðurleið í endurvinnslu fasts úrgangs, og vegna aukningar loftmengunar og köfnunarefnislosunar innflutnings.
Í loftslagsaðgerðum er einkum bent á að losun gróðurhúsalofttegunda (GHG) samfara innflutningi hafi aukist. Sjá nánar hér.
Evrópuríki efst
Evrópuríki eru í 19 af 20 efstu sætunum. Vestur-Evrópuríki eru níu af tíu efstu, en alls eru fimm ríki sem tilheyrði austurblokkinni á tímum kalda stríðsins í tuttugu efstu sætum. Á eftir Norðurlöndunum koma Frakkland og Þýskaland, en hins vegar er Bretland neðar eða númer ellefu. Athygli vekur að fjölmennustu ríki heims. Kína í 49.sæti og Indland í 99., eru býsna langt frá því að framfylgja Heimsmarkmiðunum og hafa þó færst ofar á listann en áður.
Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0
Tíu ár eru liðin frá því að Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun (Sustainable Development Goals (SDGs)), voru samþykkt á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna. Langt er í land að þeim verði náð og eins og staðan er nú mun uppskeran aðeins verða um 20% af því sem til stóð.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti svokallaða Áætlun 2030 (2030 Agenda), sem fól í sér 17 Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun. Á meðal þeirra voru að binda enda á fátækt og tryggja að öll heimsbyggðin hefði aðgang að heilsugæslu og góðri menntun fyrir 2030.
„Þessi skýrsla sýnir ekki aðeins ástandið eins og það er í dag,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna þegar hann kynnti skýrsluna. „Hún sýnir einnig að það er innan seilingar að hrinda Heimsmarkmiðunum í framkvæmd, en aðeins ef við erum sameinuð, og grípum til brýnna aðgerða, sameinuð og staðráðin í að ná árangri.“
Fimmtán efstu ríkin:
- Finnland
- Svíþjóð
- Danmörk
- Þýskaland
- Frakkland
- Austurríki
- Noregur
- Króatía
- Pólland
- Tékkland
- Bretland
- Slóvenía
- Lettland
- Spánn
- Ísland
