A-Ö Efnisyfirlit

Heimspekilegrar nálgunar þörf fyrir frið og betri heim

Isaac Newton, Alfred Tennyson Francis Bacon eru heiðraðir í frægðarhöll Camebridge-háskóla í Trinity collega.
Isaac Newton, Alfred Tennyson Francis Bacon eru heiðraðir í frægðarhöll Camebridge-háskóla í Trinity collega. Photo: K. Mitch Hodge. 

Heimspeki snýst um að leita svara við grundvallarspurningum lífsins á borð við hvað sé rétt og rangt. Heimspeki er því gagnleg í viðleitni mannsins við að lifa í friði. Alþjóðegur dagur heimspeki er 20.nóvember.

UNESCO, Mennta,- menningar,- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, ákvað árið 2002 að þriðji fimmtudagur í nóvember skyldi vera Alþjóðlegur dagur heimspeki.

Markmiðið er að minna á gildi heimspeki við að þróa mannlega hugsun fyrir hverja menningu og hvern einstakling

Alþjóðlegur dagur heimspeki
Alþjóðlegur dagur heimspeki

Grundvöllur aðgerða

Innan heimspekinnar er spurt spurninga sem erfitt er, eða jafnvel ókleift er, að svara. Hvað er maðurinn, hvað er mikilvægt fyrir manninn og hvers vegna eru mannréttindi mikilvæg? Með því að vekja fólk til vitundar og fá það til að brjóta heilann um vel ígrundaðar mismunandi skoðanir, greiðir heimspekin fyrir umburðarlyndi í samfélaginu. Á þann hátt hjálpar hún okkur við að skilja og bregðast við meiri háttar úrlausnarefnum samtímans með því að skapa vitsmunalegar forsendur breytinga.

Mynd: Rey Seven/Unsplash

Heimspekileg nálgun

„Til þess að skapa betri heim og þokast nær friði, þurfum við á heimspekilegri nálgun að halda,” sagði Audrey Azoulay forstjóri UNESCO á alþjóðlegum degi heimspeki 2022. „Heimspekin er þess vegna þýðingarmikil þegar við þurfum að skilgreina siðferðileg grundvallaratriði, sem ættu að vera mannkyninu leiðarljós.“