A-Ö Efnisyfirlit

Helförin ekki bara sagnfræði, heldur viðvörun

Helförin. Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb Helfararinnar. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði að minning Helfararinnar snérist ekki aðeins um að votta hinu liðna virðingu. „Það er skylda og fyrirheit um að vernda sæmd, slá skjaldborg um þá sem berskjaldaðir eru, og að sýna trúnað með því að neita að gleyma nöfnum og sögum fórnarlamba.” Þessi orð lét Guterres falla á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í tilefni af Alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb helfararinnar.

Helförin er þegar öllu er á botninn hvolft, ekki aðeins saga. Hún er viðvörun. Viðvörun um að þegar hatri hefur verið sleppt lausu getur það gleypt allt.“

Eingöngu af því þau voru gyðingar

Fundurinn var haldinn til að minnast allra fórnarlamba Helfararinnar. Guterres minnti á að sex milljónir gyðinga hefður verið myrtar, „eingöngu af því þau voru gyðingar.“

Róma og Sinti-fólks, fatlaðs fólki og hinsegin fólks  biðu sömu örlög.  Alþjóðlegur dagur minningar um fórnarlömb Helfararinnar er haldinn 27.janúar. Þann dag árið 1945 hertók Rauði herinn útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz.

„Og við minnumst einnig sögu og baráttu þeirra sem stóðu upp í hárinu á verstu hlið mannkyns með því að sýna bestu hlið þess,” sagði Guterres.

„Diplómatar sem virtu skipanir að vettugi og björguðu mannslífum með því að gefa út vegabréfsáritanir. Blaðamenn sem börðust fyrir því að komast að sannleikanum. Og bændur og þorpsbúar sem lögðu sig í hættu með því að skjóta skólshúsi yfir fjölskyldur.”

Hann minnti á að gyðingahatur færi vaxandi og ráðist hefði verið á sínagógur, bænahús gyðinga.

„Hroðalegu árásirnar 7.október leita á okkur og ég fordæmi þær og gíslatökurnar. Einnig hatursárásir á gyðinga á undanförnum árum og raunar undanförnum vikum.”

Hann sagði að samstaða væri mikilvægari en nokkru sinni fyrr.

„Vegna þess að Helförin er skýrt dæmi um hvaða afleiðingar það hefur ef ekki er veitt viðnám gegn hatri. Helförin hófst ekki með drápum. Hún byrjaði með orðum. Höfundar hennar breiddu út illar áætlanir sínar. Þeir lögðu sig í framkróka við að koma á framfæri hatursfullri hugmyndafræði,” sagði Guterres. „Þessi hatursvél nærðist á því að lýðræðislegar stofnanir voru tættar í sundur, fjölmiðlar múlbundnir, borgarlegt samfélag ofsótt, náð tangarhaldi á dómstólum og gefið undan réttarríki.”

Hann skoraði á ríki heims að „standa saman gegn gyðingahatri og hvers kyns hatri og ofstæki, kynþáttahatri og mismunun hvarvetna.”