Úkraína. Lækningamáttur lista er í brennidepli í nýrri landsherferð í Úkraínu sem Evrópuskrifstofa WHO og samstarfsaðilar hennar, hafa hrundið af stað. Herferðin, sem nefnist Healing Arts Ukraine, mun nýta listrænar aðferðir til að styðja við heilbrigðiskerfi Úkraínu og styrkja seiglu í ljósi átakanna.
Í yfirstandandi stríði stendur Úkraína frammi fyrir gríðarlegum áskorunum á sviði heilbrigðis- og mannúðarmála. Við þessar aðstæður er ekki furða þó margar sögur séu sagðar af seiglu landsmanna. Jafnframt samhliða þessum erfiðleikum koma fram sögur af seiglu,
Herferðin var kynnt á hringborðsumræðum í breska þinghúsinu þann 9. mars 2026 undir yfirskriftinni „Lækningamáttur lista á stríðstímum“ (e. Healing Arts in Times of War) og beinir sjónum að skurðpunkti menningar- og listageirans og heilbrigðisgeirans.
Skapandi aðferðir
„Herferðin Healing Arts Ukraine sýnir hvernig listir og menning geta gegnt líflegu og hagnýtu hlutverki við að styðja við heilsu og vellíðan á átakasvæðum,“ útskýrði dr. Nils Fietje, tæknilegur ráðgjafi í menningu og heilsu hjá Evrópuskrifstofu WHO.
„Það sem skiptir sköpum er að hún sýnir einnig hvernig hægt er að beita þessum aðferðum utan neyðaraðstæðna til að takast á við víðtækari heilbrigðisáskoranir og styrkja kerfi sem eru meira miðuð að fólki.“
Hringborðsumræðurnar mörkuðu alþjóðlega kynningu herferðarinnar, þar sem Evrópuskrifstofa WHO og samstarfsaðilar munu vinna saman að því að vekja athygli á skapandi aðferðum sem aðgengilegum, gagnreyndum og stigstærðum verkfærum til heilsu, vellíðunar og bata.
Umræðurnar byggðu á reynslu frá fremstu víglínu í Úkraínu og lögðu áherslu á hvernig listræn íhlutun stuðlar að endurhæfingu uppgjafarhermanna, seiglu meðal almennra borgara og bata barna sem búa á átakasvæðum.
Eins og Iryna Holubetska frá Unbroken Foundation lagði áherslu á: „Að samþætta listir inn í heilbrigðiskerfi er ekki munaður á stríðstímum – það er ómissandi hluti af bata og seiglu.“
Að efla heilbrigðisseiglu
Nýja herferðin er hluti af víðtækara starfi Evrópuskrifstofu WHO á sviði menningar og heilsu í Úkraínu og framkvæmd áætlunarinnar „Heilbrigðisseigla í Austursamstarfinu“ (e. Health Resilience in the Eastern Partnership).
Herferðin mun varpa ljósi á hvernig skapandi aðferðir, allt frá listmeðferð til íhlutunar á sjúkrahúsum og menningarframtaka í samfélaginu, geta stutt við lækningu, eflt félagsleg tengsl og byggt upp seiglu á stórum skala á neyðartímum.
Mikill áhugi fulltrúa breskra stjórnvalda og samstarfsaðila á hringborðsumræðunum gaf til kynna vaxandi viðurkenningu á því að nálgun á sviði lista og heilsu sé ekki viðbót, heldur nauðsynleg til að takast á við flóknar áskoranir á átakasvæðum.
Fundurinn var skipulagður í samvinnu við King’s College London og úkraínsku samstarfsaðilana Art Therapy Force, Unbroken National Rehabilitation Center og Cultural Forces.
Sjá einnig hér.
