Palestína. Ísrael. Mannréttindi. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna í mannréttindamálum hafa gefið út harðorða viðvörun vegna vaxandi hryðjuverka ísraelskra landtökumanna á herteknu palestínsku svæðunum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem.
„Vægðarlausar árásir landtökuhreyfingarinnar, sem framkvæmdar eru með stuðningi og samþykki Ísraelsríkis, eru orðnar dagleg ógn í lífi Palestínumanna. Þær sá ótta, óvissu og djúpstæðu óöryggi sem óhjákvæmilega leiðir til nauðungarflutninga íbúanna,“ sögðu sérfræðingarnir. „Vaxandi ofbeldi, sem framið er án nokkurra afleiðinga, þjónar sem þvingunartæki í höndum hernámsveldisins og auðveldar þjóðernishreinsanir.“
Bíll Palestínumanns sem ísraelskir landnemar kveiktu í 14.apríl 2024 í Jórdan-dalnum. Mynd: יפעת מהל
Creative Commons Attribution 4.0
Sérfræðingarnir fjórtán eru skipaðir af mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en starfa í eigin nafni. Skoðanir þeirra endurspegla ekki endilega skoðanir Sameinuðu þjóðanna eða OHCHR.
Markvisst ofbeldi
Sérfræðingarnir bentu á mikla aukningu mannfalls í árásum landtökumanna árið 2026. „Grimmd landtökumanna hefur náð áður óþekktum hæðum á þessu ári, en að minnsta kosti þrettán Palestínumenn hafa látist og nærri fimm hundruð særst á fimm mánuðum. Bæði dauðsföll og meiðsli eru fleiri en árin á undan,“ sögðu þeir.
„Ofbeldi er notað sem úthugsað og markvisst tæki til að meina Palestínumönnum aðgang að nauðsynlegri þjónustu, landbúnaðar- og beitilöndum, með það að lokamarkmiði að slíta tengsl fólksins við landið,“ sögðu sérfræðingarnir.
Creative Commons Zero, Public Domain Dedication
Umkringt þorp
Skýrt dæmi um þetta er þorpið Umm al-Kheir á Suður-Hebronhæðum. Það er nú umkringt af Carmel-landnemabyggðinni og nýrri útvörslu, en framkvæmdir við hana hófust í júlí 2025. Samfélagið hefur mátt þola ítrekaðar vatns- og rafmagnsrofanir, niðurrif og ofbeldisfullar árásir landtökumanna. Í júlí var mannréttindafrömuður úr samfélaginu skotinn til bana, að því er virðist af vopnuðum landtökumanni sem sætir refsiaðgerðum, í mótmælum gegn þessum framkvæmdum.
Í kjölfar morðsins fylgdu handahófskenndar handtökur íbúa, pyntingar, eyðilegging innviða, ræktarlands, vatnsbóla og beitilanda og kerfisbundnar árásir á börn. Niðurrifsfyrirmæli ógna nú þorpinu með útrýmingu.
Brot á alþjóðalögum
Nýleg stigmögnun í heimshlutanum hefur dregið alþjóðlega athygli frá þeim veruleika sem blasir við á herteknu palestínsku svæðunum, sögðu sérfræðingarnir.
„Án nokkurrar mótspyrnu og án nokkurra mótmæla heldur Ísrael áfram að grafa óafturkræft undan sjálfsákvörðunarrétti Palestínumanna sem er tryggður í alþjóðalögum.“
„Þrátt fyrir augljóst ólögmæti hernáms síns á Vesturbakkanum er Ísrael áfram bundið af skyldum sínum sem hernámsveldi samkvæmt Genfarsáttmálunum – þar á meðal skyldunni til að koma fram við palestínsku íbúana sem ‚verndaðar persónur‘ samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum,“ sögðu sérfræðingarnir.
Mannréttindi, landssíða – Ísrael
Mannréttindi, landssíða – Palestínuríki
Sjá einnig hér.
