Þegar tveir heimsfaraldrar fara saman

0
1159

Nú þegar athygli heimsins beinist nánast óskipt að COVID-19, er Alþjóðlegi alnæmisdagurinn 1.desember okkur áminning um að við höfum ekki brotið annan heimsfaraldur á bak aftur. Nærri fjörutíu ár eru liðin frá því alnæmi kom fram á sjónarsviðið.

COVID-19 hefur sýnt fram á þegar faraldur herjar á heimsbyggðina er enginn öruggur fyrr en allir eru öruggir. Ekki kemur til greina að sklija neinn eftir, ef við ætlum að ná árangri.

Lærdómar fyrir COVID-19

„Við getum dregið marga lærdóma af baráttunni gegn HIV nú þegar við glímum við COVID-19,“ segir António Guterres aðalaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi á Alþjóða alnæmisdeginum.
„Við vitum að til að binda enda á AIDS og sigrast á COVID-19 verðum við að uppræta smánun og mismunun. Okkur ber að setja fólk í öndvegi. Viðbrögð okkar verða að byggja á mannréttindum og nálgunin verður að byggja á kynjamiðuðum aðgerðum.“

Þrátt fyrir umtalsverðan árangur er alnæmis-neyðarástandinu hvergi nærri lokið. 38 milljónir manna eru HIV smitaðir. Af þeim höfðu  árið 2018 12.6 milljónir manna ekki aðgang að lyfjum sem bjarga mannslífum.

Enn smitast 1.7 milljón manna árlega af HIV. 690 þúsund manns deyja úr alnæmi á ári hverju. Ójöfnuður veldur því svo að þeir sem síst geta krafist réttar síns, eru í mestri hættu.

Hnattræn samstaða, sameiginleg ábyrgð

Þema Alþjóðlega alnæmisdagsins að þessu sinni Samstaða á heimsvísu, sameiginleg ábyrgð (‘Global Solidarity, Shared Responsibility’) er okkur alvarleg áminning um að enn þarf að útrýma ójöfnuði. Okkur ber að takast á við mannréttindabrot. Á meðal þeirra er glæpavæðing, smánun og mismunun. Þá þarf að tryggja öllum aðgang að umönnun í heilbrigðiskerfinu.

Alþjóða alnæmisdagurinn„Auður ætti ekki að ákveða hvort fólk fái þá umönnun sem það þarf á að halda. Við þurfum á COVID-19 bóluefni að halda. Við þurfum líka á HIV meðferð og umönnun sem er á viðráðanlegu verði og stendur öllum alls staðar til boða,“ segir Guterres í ávarpi sínu.

Nú þegar tveir heimsfaraldrar fara saman, hefur UNAIDS notað sérfræðiþekkingu sína til að hleypa af stokkunum ásamt samstarfsaðilum herferð sem kennd er við „Bóluefni fólksins”  (People’s vaccine initiative). Hún er hvatning um að öllum ríkjum og öllu fólki, einnig hinum fátækustu og jaðarsetustu- verði veittu aðgangur að COVID-19 bólusetni.

„Að skima, prófa og veita meðferð ætti að standa öllum til boða, líka þeim sem hafa enga sjúkratryggingu. Ekki ber að skilja neitt ríki eftir. Þá er mikilvægt að vernda mannréttindi á meðan á lokunum stendur. Þá þarf að standa þétt við bakið á heilbrigðisstarfsmönnum,“ segir Dr Jantine Jacobi, fulltrúi UNAIDS í Brussel.

Af radarnum

Alþjóða alnæmisdagurinnHún hefur áhyggjur af því að í Brussel hafi HIV „horfið af radarnum. HIV hefur horfið í fjöldann, því athygli fólks rúmar ekki faraldur sem er mikili en á niðurleið,“ segir Jacobi.

Nýlegar rannsóknir sýna að hálf milljón manna kunni að látast úr alnæmi vegna þeirra tálmana sem eru fyrir því að það njóti umönnunar.

„Við horfum líka upp á aukna smánun og mismunun í markópum okkar. Þar má nefna kynlífsstarfsmenn og svokallaðan LGBTI hóp. If þau stríða við heilsufars vandamál þá fá þau oft neikvæð viðbrögð og sækja sér síður heilbrigðisþjónustu,” segir Jacobi.

UNAIDS og fjórar aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna (UN Women, UNICEF, UNESCO og  UNFPA) hafa í sameiningu ýtt úr vör Menntun plús frumkvæðinu.  Það snýst um að styðja táningsstúlkur og ungar konur í Afríku til að ljúka framhaldsskóla og búa þær undir líf á fullorðinsárum. Ástæðan er einföld. Ef stúlkur ljúka slíku námi þá minnka líkur á að smitast af HIV um 50%.

Á Alþjóða alnæmisdeginum skiptir máli að allir leggi málstaðnum lið. Það er hægt með því að klæðast rauðu eða skrýða síðu ykkar á samfélagsmiðlum á viðeigandi hátt til að minna á þetta mikilvæga mál.

Sjá upplýsingar um HIV-alnæmi t.d. á vefsíðu HIV-Ísland hér.