Hungur. Íran. Mið-Austurlönd. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) segir að kreppan í Mið-Austurlöndum gæti einnig valdið mikilli aukningu hungurs á heimsvísu.
Samkvæmt nýrri úttekt gæt allt að 45 milljónum manna til viðbótar verið stefnt í brátt fæðuóöryggi árið 2026 ef átökin halda áfram og olíuverð helst hátt. Þetta er til viðbótar við þær 318 milljónir sem þegar glíma við hungur.
WFP varar við því að ástandið gæti orðið álíka og það sem reið yfir í upphafi stríðsins í Úkraínu, þegar hungur á heimsvísu náði methæðum.
Mest áhrif í Afríku og Asíu
Hækkandi eldsneytis-, flutnings- og áburðarkostnaður er þegar farinn að hækka matvælaverð, sérstaklega í löndum víðs vegar um Afríku og Asíu, sem eru háð innflutningi.
„Ef þessi átök halda áfram munu þau senda höggbylgjur um allan heim og þær fjölskyldur sem þegar hafa ekki efni á næstu máltíð verða fyrir mestum skakkaföllum,“ sagði Carl Skau, aðstoðarframkvæmdastjóri WFP. „Án nægilega fjármagnaðrar mannúðaraðstoðar gæti það þýtt hörmungar fyrir milljónir sem þegar eru á barmi örvæntingar.“
Skipaflutningar um Hormússund hafa nánast stöðvast og vaxandi hætta er fyrir sjóflutninga á Rauðahafi eru þegar að hækka orku-, eldsneytis- og áburðarkostnað og auka hungur utan Mið-Austurlanda. Átökin hafa víðtæk áhrif – og viðkvæmasta fólk heims verður berskjaldaðast fyrir keðjuverkun þeirra.
Hungur gæti aukist í Súdan, Sómalíu
Samkvæmt greiningu WFP eru lönd í Afríku sunnan Sahara og Asíu viðkvæmust vegna þess hve mikið þau reiða sig á innflutning matvæla og eldsneytis. Spár benda til 21 prósenta aukningar á fólki í fæðuóöryggi í Vestur- og Mið-Afríku og 17 prósenta í Austur- og Suður-Afríku. Spáð er 24 prósenta aukningu í Asíu.
Súdan flytur til dæmis inn um 80 prósent af hveiti sínu – hærra verð á þessari grunnfæðu mun ýta fleiri fjölskyldum í hungur. Í Sómalíu, landi sem glímir við alvarlega þurrka, hefur verð á sumum nauðsynjavörum hækkað um að minnsta kosti 20 prósent frá því átökin hófust, samkvæmt staðbundnum fréttum. Bæði eru lönd með mikið fæðuóöryggi sem einnig hafa upplifað hungursneyð á undanförnum árum.
