A-Ö Efnisyfirlit

Hugsaðu áður en þú smellir! 8 ráð til að gera internetið öruggara

Alþjóðlegur dagur öruggara internets
Alþjóðlegur dagur öruggara internets

Alþjóðlegur dagur öruggara internets er haldinn 10.febrúar. Þetta frumkvæði nýtur stuðnings stofnana Sameinuðu þjóðanna á borð við Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og UNESCO.  Þema dagsins 2026 er „Snjöll tækni, öruggt val,” og er ætlunin að beina athyglinni að öruggri og ábyrgri notkun gervigreindar.

UNICEF hvetur ríkisstjórnir, regluverði og tæknifyrirtæki til að styðja lagasetningu, stefnumörkun og aðgerðir til að börn geti verið örugg á netinu og haft gagn af því.

Alþjóðlegur dagur öruggara internets
Alþjóðlegur dagur öruggara internets

Alþjóðlegur dagur öruggara internets: 8 ráð

Hér eru átta röð í tilefni dagsins til að gera netið öruggari stað fyrir ykkur og börn (ykkar):

1.) Sjáðu til að öll tæki þín séu uppfærð og noti nýjasta hugbúnað. Þetta er mikilvægt til að forðast öryggisvá á borð við óheimilan aðgang, auðkennisþjófnað og gagnaleka.

2.) Athugaðu persónuverndarstillingar fyrir hvert tæki til að lágmarka hvaða gögnum er safnað og deilt (t.d. staðsetningu og myndum).

Alþjóðlegur dagur öruggara internets Alþjóðlegur dagur öruggara internets
Alþjóðlegur dagur öruggara internets

3.) Stjórnaðu aðgangi að myndavélum og hljóðnemum.

4.) Farðu yfir stillingarhluta samfélagsmiðla, leikja og forrita sem barnið þitt notar. Leitaðu að persónuverndar-, öryggis- og reikningsstillingum til að stjórna hverjir geta séð upplýsingar barna og haft samband við þau.

5.) Margir samfélagsmiðlar og snjallforrit biðja um aðgang að myndavélinni þinni, hljóðnemanum, tengiliðum, myndum og staðsetningu. Farðu yfir heimildirnar fyrir hvert þeirra og slökktu á eða takmarkaðu þær sem virðast óhóflegar eða óviðeigandi miðað við aldur og þroska barnsins þíns.

Alþjóðlegur dagur öruggara internets
Alþjóðlegur dagur öruggara internets

6.) Farðu yfir stillingarhluta samfélagsmiðla, leikja og forrita sem barnið þitt notar. Leitaðu að persónuverndar-, öryggis- og reikningsstillingum til að stjórna hverjir geta séð upplýsingar barna og haft samband við þau.

7.) Notaðu vírusvarnarforrit til að vernda tækin þín.

8.) Búðu til sterk lykilorð til að tryggja öryggi reikninga þinna. Notaðu fjölþátta auðkenningu ef mögulegt er til að auka öryggi. Íhugaðu að nota lykilorðastjórnunartól og deildu aldrei lykilorðum með öðrum.

Alþjóðlegur dagur öruggara internets, sjá einnig hér, hér og hér.