A-Ö Efnisyfirlit

Hundruð þúsunda án húshitunar í Úkraínu í brunagaddi

Börn eru svipt æskunni í Úkraínu.
Úkraína: Börn eru svipt æskunni. Mynd: UNICEF/UNI448430/Hrom

Úkraína. Rússland. Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðánna segir felmtri sleginn yfir árásum Rússlanda á orku-innviði í Úkraínu. Stór hluti íbúa Kyiv og Odesa eru án rafmagns og hita eftir árásir í nótt.

„Þetta gerist á sama tíma og brunakuldi er í Úkraínu og hitinn fer niður fyrir tíu gráður á Celsius að næturlagi,“ sagði mannréttindastjórinn í yfirlýsingu.

„Óbreyttir borgarar verða harðast úti í þessum árásum. Þeim verður ekki lýst öðruvísi en sem grimmilegum. Þær verður að stöðva. Það er skýrt brot á reglum um hernað að gera óbreytta borgara og borgarlega innviði að skotmörkum.“

Fimm ára gömul stúlka á leið með móður sinni í útlegð til Póllands.
Fimm ára gömul stúlka á leið með móður sinni í útlegð til Póllands. Mynd: UNOCHA/Matteo Minasi

Hundruð þúsunda án húshitunar

Neyðarástand ríki í fjölmörgum héruðum, vegna hita og rafmagnsskorts vegna árása með langdrægum vopnum undanfarna daga.

„Þetta þýðir að hundruð þúsunda fjölskyldna eru án húshitunar. Á mörgum svæðum, þar á meðal í Kyiv, er einnig vatnslaust,“ sagði Türk. „Þetta kemur harðast niður á veikburða fólki, þar á meðal börnum, eldra fólki og fólki með fötlun.”

Rússaher hefur þráast við að halda slíkum stórfelldum ára´sum áfram, þótt vitað sé hver alvarlegar afleiðingarnar eru fyrir almenning, sagði Türk.

Rússneski herinn hóf að nýju kerfisbundnar, umfangsmiklar árásir á orku-innviði Úkraínu í október á síðasta ári. Rafmagnslaust er í allt að 18 klukkustundir á dag í flestum héruðum landsins.

Fjölskyldur leita skjóls í færanlegu tjaldi í Kyiv.
Fjölskyldur leita skjóls í færanlegu tjaldi í Kyiv. © UNICEF/Oleksii Fili

Skorar á Rússa að hætta árásum

„Ég hvet rússnesk stjórnvöld til að hætta þegar í stað þessum árásum,“ sagði Türk. „Það er skelfilegt að horfa upp á óbreytta borgara þjást með þessum hætti.”

Fjölskyldur um alla Úkraínu geta ekki snúið sér að neinu öðru en einbeita sér að því að lifa af. Flugskeyta og drónaárásir valda því að íbúðablokkir eru hita og rafmagnslausar svo dögum skiptir á meðan frostið bítur úti fyrir.

„Fjölskyldur hafa gripið til þess ráðs að nota tuskudýr til þess að reyna að einangra glugga og hald frostinu í skefjum,“ segir Munir Mammadzade fulltrui UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu.

Síðastliðinn föstudag v ar frostið -15°C í Kyiv. UNICEF fulltrúinn varar við því að búist sé við enn kaldara veðri í næstu viku. Milljónir fjölskyldna um allt landið munu þurf að glíma við frostið hita,- rafmagns,- og vatnslaus.

Mammadzade segir að á þeim nærri fjórum árum sem liðin eru frá allsherjarinnrás Rússa hafi börn þurft að hugsa um að lifa af í stað þess að njóta æskuáranna. 11% fleiri börn hafa látist árið 2025 en fyrra ár.

Sjá einnig hér.