A-Ö Efnisyfirlit

Sameinuðu þjóðirnar fara fram á 2.3 milljarða dala fjárveitingar til Úkraínu

Eyðilögð rússnesk hergögn til sýnis í Kyiv.
Eyðilögð rússnesk hergögn til sýnis í Kyiv. Mynd: Árni Snævarr

Úkraína. Mannúðaraðstoð. Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á 2.3 milljarða Bandaríkjadala fjárveitingar til að standa straum af kostnaði við mannúðaraðstoð í Úkraínu á þessu ári. Markmiðið er að koma 4.1 milljón manna í landinu til hjálpar. Beiðnin er lögð fram á sama tíma og Rússar hafa gert harðar árásir á landið.

Frá því Rússland gerði allsherjarinnrás í nágrannaríki sitt í febrúar 2022, hafa Sameinuðu þjóðirnar komið bágstöddu fólki til hjálpar í landinu. Borgarbúum sem sæta dróna- og flugskeytaárásum hefur verið komið til hjálpar. Einnig samfélögum nærri víglínunni og fólki, sem flúið hefur hættuna.

Minnisvarði um fallna hermenn á Maidan í Kyiv.
Úkraína: Minnisvarði um fallna hermenn á Maidan í Kyiv. Mynd: Árni Snævarr

2025 mannskætt ár

„Við erum að tala um fólk sem flosnað hefur upp frá heimilum sínum og dvalið í almannarýmum í tvö til þrjú ár. Við erum að tala um eldra fólk og fólk með skerta hreyfigetu,“ sagði Matthias Schmale yfirmaður aðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu.

Rússar hafa gert nærri 1100 drónaárásir, kastað meir en 890 stýrðum sprengjum og skotið að minnsta kosti 50 flugskeytum af ýmsum toga á Úkraínu í liðinni viku að sögn fjölmiðla og stjórnvalda.

Mannréttindateymi Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu telur að 2025 hafi verið mannskæðasta árið frá 2022. 2500 óbreyttir borgarar voru drepnir og rúmlega 12 þúsund særðir.

Afleiðingar loftárásar á Kyiv síðastliðið vor.
Afleiðingar loftárásar á Kyiv síðastliðið vor. Mynd: Árni Snævarr

-15°C í Kyiv

Sameinuðu þjóðirnar hafa séð nauðstöddum fyrir grundvallaraðstoð; svo sem mat, heilsugæslu, húsaskjóli, vernd og reiðufé. Féð sem safnað verður, mun einnig standa straum af kostnaði við flutninga fólks sem er í bráðri hættu frá víglínunni. „Hetjur sinna þessu starfi við víglínuna,” sagði Schmale um þau hundruð mann sem bjarga mannslífum á þennan hátt með stuðningi Sameinuðu þjóðanna.

„Við viljum halda áfram stuðningi okkar, eins og við getum, en til þess þurfum við fjármagn,“ sagði Schmale. Hann benti sérstaklega á þær miklu þjáningar sem óbreyttir borgarar liðu, nú þegar15 stiga frost er í Kyiv.