Gasasvæðið. Hungur. Mannúðaraðstoð.
Bifreið sem flutti Frans heitinn páfa í heimsókn hans til Palestínu 2014 verður breytt í farandspítala til að hjúkra börnum á Gasa. Hugmyndin um „vonarbílinn” á rætur að rekja til Svíþjóðar. Bíllinn er af því tagi sem eitt sinn var kallað „popemobile”, eða opin bifreið með gagnsæju þaki og opnum hliðum.
Frans páfi lét sig málefni Gasasvæðisins miklu varða. Hann hringdi daglega í einu kaþólsku kirkjuna á Gasa síðastliðið hálft annað árið til að sýna samstöðu með þeim sem þjáðust. Hann sagði eitt sinn: „Börn eru ekki tölur. Þau hafa andlit. Nöfn. Sögur. Og hvert og eitt þeirra er heilagt.”
Peter Brune framkvæmdastóri kaþólsku hjálparsamtakanna Caritas í Svíþjóð átti hugmyndina að endutnýta páfabílinn.. Caritas í Jerúsalem hefur barist fyrir tafarlausu vopnahlé á Gasa. 14 lækningateymi eru á vegum samtakanna á Gasasvæðínu
Börn eiga ekki sök á stríði
„Jerúsalemdeildin hefur rúmlega 100 manns að störfum á Gasa. Því miður hafa nokkrir þeirra látið lífið,” segir Brune.
Nú er verið að búa páfabílinn nauðsynlegum tækjum og tólum í Jerúsalem til þess að sinna uppflosnuðum og vannærðum börnum. Bílstjórar og þjálfað hjúkrunarfólk frá Caritas Jerúsalem munu starfrækja litla farandsjúkrahúsið.
„Gasa hefur verið í algjörri herkví síðan í byrjun mars. Það þarf að semja við Ísrael um að bifreiðin fái að komast til Gasa. VIð erum vongóð um að hún komist og við náum til barnanna,” segir Peter Brune.
„Það eru ekki börnin sem eiga sök á stríðinu en þau verða harðast fyrir barðinu á því.“
Talið er að hálf milljón manna líði hamfarahungur á Gasa þessa stundina.
Guterres: Rödd friðar
Antonio Guterres aðaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lauk lofsorði á Frans páfa í ræðu á minningarstund í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna og sagði að hann hefði ætíð talað máli friðar í stríðshrjáðum heimi. Hann hefði verið boðberi vonar.
„Það er á okkar valdi að halda starfi hans áfram og það skiptir máli að Frans páfi lýsti 2025 ár vonar,“ sagði Guterres.
