Alþjóðlegi tungldagurinn. Tunglið. Tíminn. Það er ekki jafn einfalt að segja hvað klukkan er á tunglinu og ætla mætti. Og þessi einfalda, grundvallarspurning er í hópi úrlausnarefna, sem koma upp á yfirborðið nú þegar áhugi á könnun tunglsins hefur vaknað að nýju. Alþjóðlegi tungldagurinn er haldinn 20.júlí.
Sameinuðu þjóðirnar vinna að því að tryggja að tunglinu sé stjórnað á samhæfðan og friðsamlegan hátt. Samkomulag um tímabelti tunglsins er er eitt af þeim málefnum sem eru nú til umfjöllunar á alþjóðlegum vettvangi.
En er ekki hægt að ákveða að einhvert eitt tímabelti jarðar gildi á tunglinu og verði „tungtími” ? Hversu flókið þarf þetta að vera?
Á jörðu niðri er einfalt að taka tíma. Plánetunni er skipt niður í 24 tímabelti, eftir lengdarbaug og snúningi jarðar. Við miðum tímann við stöðu sólar á himni.
En á mánanum er þessu öðruvísi farið. Tungldagur er um það 29.5 jarðardagar. Sól getur skinið stanslaust án þess að ganga til viðar í allt að fjórtán daga. Og á hæstu tindum tunglsins sest sólinn aldrei og eru þeir því kallaðir „tindar eilífs sólskins.”
Og eins og eðlisfræðingar og aðdáendur vísindaskáldskapar vita mæta vel, er tíminn ekki sá sami á tungli og á jörð. Ef tveimur fullkomlega samstilltum klukkum er komið fyrir, öðru á jörðu, en hinu á tunglinu, myndi tunglklukkan vera 56 míkrkósekúndum á undan eftir aðeins einn jarðardag. Þetta hljómar smásmugulegt en þessi örlitli munur kann að skipta sköpum.
Að sameinast um tungltíma
Til þessa að tungltími virki þurfa áhugasamir tunglfarar að koma sér saman um sameiginlegan tíma, sem er áreiðanlegur og hægt að stilla saman við jarðartíma. Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir málefni geimsins (UN Office for Outer Space Affairs (UNOOSA)), hefur tekið forystuna í að leysa þetta úrlausnarefni.
Friður á jörðu, sem á tungli
Samstilling tímans á tunglinu er hluti af víðtækari viðleitni Sameinuðu þjóðanna til að tryggja að öll mannleg virkni á tunglingu, hvort heldur sem er einkaaðila- eða opinberra, vísindalegra eða í atvinnuskyni, sé örugg, friðsamleg og sjálfbær. UNOOSA boðaði í þessu skyni til fyrstu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra starfsemi á tunglinu (United Nations Conference on Sustainable Lunar Activities) í júní 2024.
Yfirmenn geimferðastofnana, lögspekingar, geimfarar, fyrirtæki og fræðimenn leiddu þar saman hesta sína til að ræða sameiginleg áhugamál, skiptast á skoðunum og ítreka nauðsyn gegnsærrar stjórnunar tunglsins í allra þágu.
Alþjóðlegi tungldagurinn
Frá upphafi geimaldar hafa Sameinuðu þjóðirnar viðurkennt geiminn sem nýja vídd mannlegrar tilveru. Allsherjarþingið samþykkti árið 2021 að 20.júlí skýldi vera Alþjóðlegi tungldagurinn. Þann dag stigu geimfarar Appolo 11.fyrstir manna á yfirborð tunglsins.
Árið 1967, gekk samningur um könnun geimsins í gildi en honum er stundum líkt við „Magna Carta” geimsins. Í dag hefur Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir málefni geimsins (United Nations Office for Outer Space Affairs (UNOOSA) ) það hlutverk að efla alþjóðlega samvinnu um friðsamlega nýtingu geimsins. Sjá nánar hér.
