A-Ö Efnisyfirlit

Ísland tekur sæti í Mannréttindaráðinu

Fundarsalur Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf.
Fundarsalur Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Ísland sest í Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna nú um áramótin. Ísland var kjörið í ráðið á Allsherjarþinginu 9.október 2024. Þetta er í annað skipti sem Ísland á sæti í ráðinu, en fyrra skiptið var eftir úrsögn Bandaríkjanna 2018.

„Við stöndum einfaldlega frammi fyrir miklum áskorunum þar sem mannréttindi eiga mjög víða undir högg að sækja, sagði Þórdís Kolbrún Gylfadóttir þáverandi utanríkisráðherra eftir kjör Íslands í ráðið.

„Okkar helsta markmið í ráðinu verður barátta fyrir bættum mannréttindum allra og þá leggjum við áherslu á að styrkja ráðið sem málsvara mannréttinda, sem það þarf að vera. Ísland, sem nýtur góðs af góðri stöðu heima fyrir, tekur þessu ábyrgðarhlutverki á alþjóðasviðinu alvarlega á þeim krefjandi tímum sem við lifum.”

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráðið 2022
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráðið 2022.

 47 ríki í ráðinu

Alls sitja 47 ríki í Mannréttindaráðinu. Þau eru kosin á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í beinni og leynilegri kosningu. Allsherjarþinginu ber að taka tillit til framlag ríkja til verndar og eflingu mannréttinda auk fyrirheita og skuldbindinga á þessu sviði.

Ríki eru kosin í Mannréttindaráðið til þriggja ára í senn. Þau geta ekki boðið sig fram að nýju eftir tveggja kjörtímabila setu í ráðinu.

Sjá nánar um Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hér.