Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur tilkynnt að Ísland muni greiða framlög til UNRWA, Palestínuflóttamannastofnunarinnar, fyrr en áætlað var,“ í ljósi gríðarlegrar mannúðarþarfar.”
Utanríkisráðherra ræddi við forstjóra UNRWA, Philippe Lazzarini, í gær. „Ísland metur mikils það mikilvæga starf sem Lazzarini og starfsfólk hans inna af hendi við afar krefjandi aðstæður,” sagði Þorgerður Katrín á Facebook-síðu sinni.
Hún ræddi einnig við Sigrid Kaag yfirmann mannúðar- og uppbyggingarmála Sameinuðu þjóðanna fyrir Gasa. „Við fórum yfir mikilvægi þess að koma á vopnahléi í Gaza, bæta aðgengi að mannúðaraðstoð og finna leið að lausn fyrir fólkið á svæðinu. Því staðan núna er óviðunandi.”
Þessum hryllingi verður að linna
Utanríkisráðherra sagði á Facebook að það væri hennar einlæga trú að alþjóðasamfélagið geti gert meira og talað hærra – fyrir friði og fyrir fólkið sem býr við óhugsandi og grimmilegar aðstæður á degi hverjum.
„Við komuna í utanríkisráðuneytið einsetti ég mér að beita rödd minni hvert sem ég fer, í þágu mannúðar og frelsis…Ísland stendur með saklausum borgurum og börnum sem líða fyrir þessar ólýsanlegu hörmungar. Þessum hryllingi verður að linna.”
Ísland hefur á undanförnum árum stóraukið framlög sín til UNRWA og hefur áður greitt framlög sín fyrir gjalddaga. Haustið 2023 undirrituðu Ísland og UNRWA samning um stuðning Íslands til fimm ára 2024-2028.
Klukkan tifar
Svíþjóð hætti í síðasta mánuði stuðningi við UNRWA í kjölfar samþykktar ísraelska þingsins, Knesset, að segja upp samstarfi við UNRWA frá og með janúarlokum. Áður höfðu utanríkisráðherra Norðurlandanna fimm, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar varað við samþykkt ályktunarinnar Knessets.
„Klukkan tifar hratt og það er skammt þangað til samþykkt Knesset kemur til framkvæmda,“ skrifaði Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA á samskiptamiðilinn X. „Ef hún tekur gildi, þýðir það bann við við starfi UNRWA á herteknum svæðum Palestínumanna. Þetta er hluti af umfangsmeiri viðleitni til að uppræta palestínska sögu og einkenni. Samþykktin kemur til framkvæmda innan tæplega fjögurra vikna.“
Sjá nánar hér: Hvers vegna er bann Ísraels við starfi UNRWA svo alvarlegt?
