Íslenskir rithöfundar skrifa Ban bréf

0
429

Barnaheill, Save the Children og rithöfundar um allan heim hafa tekið höndum saman um að skera upp herör til og hvetja til aðgerða til að tryggja öllum börnum skólagöngu fyrir árið 2015, eins og eitt af þúsaldarmarkmiðum SÞ um þróun gerir ráð fyrir.
 

Rithöfundarnir hafa skrifað undir bréf, til leiðtoga ríkja heims og Ban-Ki Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að herða róðurinn í baráttu gegn ólæsi og skorti á menntun.
Pétur Gunnarsson, formaður Rithöfundasambands Íslands afhenti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra áskorunina með undirskrift 45 íslenskra rithöfunda, en utanríkisráðherra og forsætisráðherra sækja Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna síðar í mánuðinum þar sem þúsaldarmarkmiðin verða til umræðu.
„Ef það er eitthvað sem við Íslendingar getum miðlað heiminum þá er það vitneskjan um mikilvægi læsis,” sagði Pétur við afhendingu undirskriftarlistans. Alls hafa 250 rithöfundar víðsvegar um heim skrifað undir áskorunina til Sameinuðu þjóðanna, samkvæmt fréttatilkynningu.
„Nú eru aðeins sjö ár til stefnu til að ná þúsaldarmarkmiði SÞ, um að öll börn í heiminum  njóti sömu tækifæra til grunnmenntunar. Enn eru 72 milljónir barna þó utan skólakerfis, og 37 milljónir þeirra búa í löndum þar sem átök ríkja eða hafa ríkt. Þó í stríðshrjáðum löndum búi helmingur þeirra barna sem eru án skólagöngu fer ekki nema 20% af menntunarframlagi ríku þjóðanna til barna í þeim löndum. Börn í stríðshrjáðum löndum eru þannig skilin eftir með litla von um að brjótast úr vítahring fátæktar og átaka,” segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Save the Children á Íslandi, í tilkynningu.

(Heimild: Morgunblaðið)