Ísrael. Dauðarefsing. Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt Ísrael til að fella úr gildi lög sem þing landsins samþykkti 30. mars og taka aftur upp dauðarefsingu. Ákvæði laganna eiga nánast eingöngu við um Palestínumenn.
„Það veldur miklum vonbrigðum að þetta frumvarp hafi verið samþykkt af Knesset,“ sagði Türk.
„Það er augljóslega í ósamræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Ísraels, þar á meðal varðandi réttinn til lífs. Það vekur alvarlegar áhyggjur af brotum á réttlátri málsmeðferð og felur í sér mikla mismunun.”
Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0
Sjálfkrafa dauðarefsing
Meðal annarra vafasamra ákvæða gera lögin hengingu að sjálfkrafa refsingu fyrir Palestínumenn sem eru dæmdir á hernumda Vesturbakkanum fyrir mannskæðar árásir á Ísraela. Þau kveða einnig á um að dauðadómar skuli framkvæmdir innan 90 daga. Slíkt er í sjálfu sér brot á alþjóðlegum mannúðarlögum. Lögin veita heldur ekki möguleika á náðun, eins og krafist er í alþjóðlegum mannréttindalögum.
„Dauðarefsing felur í sér óásættanlega hættu á að saklaust fólk sé tekið af lífi,“ sagði mannréttindastjórinn. „Beiting hennar með mismunun myndi fela í sér viðbótarbrot, sérstaklega alvarlegt, á alþjóðalögum. Beiting hennar á íbúa hernumdu palestínsku svæðanna myndi teljast stríðsglæpur.“
Sérdómstóll fyrir árásir 7.október ´23
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti einnig yfir áhyggjum af tillögum í öðru frumvarpi sem nú liggur fyrir Knesset um að stofna sérstakan (her)dómstól eingöngu til að lögsækja fyrir glæpi sem framdir voru í og í kjölfar hinna skelfilegu árása palestínskra vopnaðra hópa 7. október 2023. Fyrirhugaður sérdómstóll hefði ekki lögsögu yfir glæpum sem ísraelskar hersveitir fremja á hernumdu palestínsku svæðunum.
„Ég hvet Knesset til að hafna þessu frumvarpi. Með því að einblína eingöngu á glæpi sem Palestínumenn fremja, myndi það festa í sessi mismunandi og einhliða réttvísi,“ sagði Türk.
Þessar lagalegu aðgerðir munu festa enn frekar í sessi brot Ísraels á banni við kynþáttaaðskilnaði og aðskilnaðarstefnu með því að beina spjótum sínum að Palestínumönnum, sem oft eru dæmdir eftir óréttlát réttarhöld.
Herdómstólar fyrir borgara bannaðir
Samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum eru réttarhöld yfir almennum borgurum fyrir herdómstólum bönnuð, nema í algjörum undantekningartilvikum þar sem ríkið getur sýnt fram á að slíkir dómstólar séu nauðsynlegir og réttlætanlegir af alvarlegum og knýjandi ástæðum, og þar sem venjulegir borgaralegir dómstólar geta ekki sinnt réttarhöldunum.
Áður höfðu Mannréttindasérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna hvatt Ísrael til að afturkalla lagafrumvarpið um dauðarefsingar.
