A-Ö Efnisyfirlit

Ísrael: Mannréttindastjórinn fordæmir „þjóðarmorðsorðræðu”

Mannréttindastjórinn flutti upphafsræðu 60.fundar Mannréttindaráðsins.
Mannréttindastjórinn flutti upphafsræðu 60.fundar Mannréttindaráðsins. Mynd: OHCHR/Anthony Headley

Mannrétttindaráð Sameinuðu þjóðanna

Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í dag háttsetta embættismenn ríkisstjórnar Ísraels fyrir þjóðarmorðsorðræðu í opnunarræðu sinni á 60.þingi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.

„Ég er felmtri sleginn yfir því hvernig háttsettir ísraelskir embættismenn tala opinskátt um þjóðarmorð og skammarlega afmennskun þeirra á Palestínumönnum,“ sagði Volker Türk mannréttindastjóri.

Türk sagði að fjöldamorð Ísraela á palestínskum borgurum á Gasasvæðinu, hindranir á flutningi lífsbjargandi aðstoðar til svæðisins, dráp á blaðamönnum og „stríðsglæpir ofan á stríðsglæpi” hefðu sært samvisku heimsins.

„Ísrael ber lagaleg skylda til að hrinda í framkvæmd þeim atriðum sem Alþjóðadómstóllinn hefur fyrirskipað. Ríkinu bera að koma í veg fyrir þjóðarmorð, refsa þeim sem hvetja til þjóðarmorðs og tryggja að Palestínumönnum á Gasa berist aðstoð,“ sagði Türk.

Upphaf 60.fundar Mannréttindaráðsins.
Upphaf 60.fundar Mannréttindaráðsins. Mynd: UN Geneva

Yfirferð um stöðu mannréttinda

Í yfirferð um mannréttindi í heiminum nefndi hann sérstaklega fleiri lönd.

Rússland/Úkraína:  „Vísvitandi árásir á borgaraleg orkukerfi og aðra innviði sem eru þýðingarmiklir fyrir almenna borgara eru gróf brot á alþjóðalögum.“

„Úkraínskir stríðsfangar og borgarar sem sæta geðþóttahandtökum eru beittir umfangsmiklum og kerfisbundnum pyntingum og mega þola illa meðferð.“

Súdan: „Báðar stríðandi fylkingar í borgarstríðinu hafa þverbrotið alþjóða mannúðar- og mannréttindalög…og ráðast á heilbrigðisstofnanir, markaði og vatnsveitur.“

Myanmar: „Herinn gerir loftárásir og sprengjuárásir á óbreytta borgara á heimilum þeirra, í þorpum, skólum og búðum. Hann ber ábyrgð á handhófskenndum árásum, pyntingum, kynferðislegu ofbeldi og að þvinga fólk til hermennsku.“

Lýðveldið Kongó: „Það liggja fyrir sannanir um áframhaldandi alvarleg brot og misnotkun allra aðila að átökunum.”

Bandaríkjum ber að hætta þvingunum

Mannréttindastjórinn sagði einnig að hann hefði þungar áhyggjur af því að sum ríki hafi sagt sig frá fjölþjóðaregluverki, stofnunum og alþjóðlegum samningum.

„Ég hef þungar áhyggjur af handtökuskipunum Rússlands og þvingunum sem Bandaríkin hafa beitt dómara og saksókara Alþjóðlega glæpadómstólsins. Bandaríkjunum ber að hætta þvingunum gegn sérstökum erindreka sem þetta ráð skipaði.“