A-Ö Efnisyfirlit

Sameinuðu þjóðirnar gagnrýna refsiaðgerðir gegn Albanese

Francesca Albanese óháður sérfræðingur Mannréttindaráðsins.
Francesca Albanese óháður sérfræðingur Mannréttindaráðsins. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Æðsti yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum hefur lýst alvarlegum áhyggjum að aðgerðum Bandaríkjanna gegn Francesca Albanese sérfræðingi samtakanna í málum herteknu svæðanna í Palestínu. Talsmaður aðalframkvæmdastjórans tekur í sama streng. 

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna tilkynnti um refsiaðgerðir gegn Francesca Albanese,sem er óháður sérfræðingur skipuð af Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Henni er gefið að sök að „hafa átt í samvinnu við Alþjóðlega glæpadómstólinn (International Criminal Court (ICC)) í viðleitni til að rannsaka, handtaka eða saksækja þegna Bandaríkjanna eða Ísraels án samþykkti þessara tveggja landa.” Slíkt sé „gróft brot” á fullveldi ríkjanna. Þau eru ekki aðilar að Rómar-samkomulaginu, sem liggur til grundvallar starfi Alþjóðlega glæpadómstólsins.

Stéphane Dujarric talsmaður Sameinuðu þjóðanna á blaðamannafundi í New York
Stéphane Dujarric talsmaður Sameinuðu þjóðanna á blaðamannafundi í New York

Hættulegt fordæmi

Stéphane Dujarric talsmaður aðalframkvæmdastjórans gagnrýndi aðgerðirnar og sagði þær setja „hættulegt fordæmi.”

Volker Türk mannréttindastjór
Volker Türk mannréttindastjóri. Mynd: UN Photo Loey Felipe

Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti til tafarlausrar endurskoðunar refsiaðgerðanna. „Jafnvel þótt þau kunni að vera alvarlega ósammála, ber aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna að vinna á uppbyggilegan hátt í stað þess að grípa til refsinga,” sagði hann.