Ísrael. Stríðsglæpir. Mannnúðaraðstoð. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir í yfirlýsingu að það kunni að felast stríðsglæpir í því að meina óbreyttum borgurum um aðgang að mat.
Volker Türk mannréttindastjóri segir að myndir af sveltandi fólki á Gasasvæðinu séu hjartaskerandi og óþolandi.
„Ísrael heldur áfram að takmarka verulega þá mannúðaraðstoð sem berst til Gasasvæðisins. Sú aðstoð sem berst er langt frá því að fullnægja þörfum. Ísrael ber þegar í stað að leyfa og greiða fyrir skjótum og óhindruðum aðgangi nægilegrar mannúðaraðstoðar til að koma í veg fyrir ónauðsynlegar þjáningar og mannslátum. Að meina óbreyttum borgurum um aðgang að mat kann að fela í sér stríðsglæpi auk þess sem slíkt er hugsanlega glæpur gegn mannúð.”
Birting myndbanda lítillækkandi
Türk sagði ennfremur að myndbönd af grindhoruðum ísraelskum gíslum sem palestínsk vígasveit hefði birt væru skelfileg. „Ég er felmtri sleginn yfir þeirri lítillækkandi meðferð sem þeir sæta. Leyfa ætti Alþjóðanefnd Rauða krossins að veita þeim aðstoð þegar í stað.“
Mannréttindastjórinn ítrekaði að leysa eigi úr haldi alla gísla og alla sem sæta geðþótta- fangelsun, þegar í stað og skilyrðislaust.
„Þriðju ríkjum ber að láta hjá líða að taka þátt í brotum á alþjóðlögum stríðandi fylkinga. Þau ættu að nota áhrif sín til að koma í veg fyrir slík brot.”

