A-Ö Efnisyfirlit

Jólagjöfin í ár: Hjálpið börnum sem misst hafa útlimi á Gasa

Rateb var tíu ára gamall þegar hann missti móður sína og annan fótinn í árás Ísraels.
Rateb var tíu ára gamall þegar hann missti móður sína og annan fótinn í árás Ísraels. Skjáskot UNRWA

Vantar ykkur gjöf til að gefa á síðustu stundu? Þú getur hjálpað fjölmörgum þeirra palestínsku barna, sem misst hafa útlimi í árásum á Gasasvæðið. Rúmlega 10 þúsund börn hafa misst hendur eða fætur.

Rateb er tíu ára gamall palestínskur drengur. Hann lék fótbolta við vini sína – en þá braust út stríð. Fjölskylda hans lenti á vergangi. Þegar þau voru stödd nærri Khan Younis var gerð árás á bíl rétt hjá þeim. Móðir Ratebs dó og hann slasaðist. Fyrsta sem hann spurði þegar hann vaknaði erftir árásina var: „Hvar er mamma?“

Fyrir stríðið gekk hann í skóla og lék fótbolta með vinum sínum. Mynd: skjáskot URNWA
Fyrir stríðið gekk hann í skóla og lék fótbolta með vinum sínum. Mynd: skjáskot URNWA

Móður sína fékk hann ekki aftur. Hann gekkst undir fimm skurðaðgerðir. Hann hefur misst fótin en fengið ófullkominn gervifót. UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálpin, hefur veitt honum aðstoð við endurhæfingu líkamlega jafnt sem andlega.

“Hvergi eru fleiri börn sem missst hafa útlimi í nútímasögunni en á Gasasvæðinu,” segir Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA. Af þeim 42 þúsund Gasabúum, sem hafa orðið fyrir slíkum meiðslum eru fjórðungur börn eða rúmlega tíu þúsund.

Nú við árslok 2025 hírast þúsundir palestínskra flóttamanna á Gasa án matar, þaks yfir höfuðið, sem stendur undir nafni. Nú þegar vetur er genginn í garð er UNRWA líflína þeirra.

Framlag ykkar rennur til að afla matar, lyfja, hreins vatns og skjóls fyrir þá sem um sárast eiga að binda. Og læknisþjónustu fyrir börn sem misst hafa útlimi.

UNRWA hefur sinnt drengnum eins og kostur
UNRWA hefur sinnt drengnum eins og kostur er. Sjkáskot: UNRWA

Ljúkið árinu með því að láta fé af hendi rakna til barnanna 700 þúsund, sem hírast soltin í vetrarveðri í rústunum á Gasa.

Smellið hér.

Einnig er hægt að kosta sérstaklega læknisvitjanir barna á borð við Rateb. Fyrir andvirði 100 evra – um 15 þúsund íslenskra króna – má kosta fimmtíu skipti.

Smellið hér.