A-Ö Efnisyfirlit

Kongó/Rúanda: Vígasveitir fordæmdar fyrir fjöldamorð

Kona með kassa frá WFP með orkuríku kexi. Matvælum var komið til bágstaddra eftir flóði í Suður Kivu í Lýðveldinu Kongó. Mynd: WFP/FSC/Martin Lukongo
Kona með kassa frá WFP með orkuríku kexi. Mynd: WFP/FSC/Martin Lukongo

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó. M23 vígasveitirnar drápu að minnsta 319 óbreyttir borgara í fjórum þlorpum í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldiðisins Kongó á innan við tveimur vikum í júlí. Þær njóta stuðnings hermanna frá Rúanda. Þetta er niðurstaða rannsóknar mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC).

Langflestir hinna látnu voru bændur, en á meðal þeirra voru að minnsta kosti 48 konur og 19 börn. Þorpin eru á Rusthuru-svæðinu í Norður-Kivu fylki. Þetta er eitt mesta mannfall sem orðið hefur frá því M23 hófu árásir að nýju 2022.

Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur gagnrýnt manndrápin harðlega.

„Ég er felmtri sleginn yfir árásum M23 og annara vígasveita á óbreytta borgara í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. þrátt fyrir vopnahlé sem undirritað var nýlega í Doha,“ sagði Türk. “

Mannréttindastjórinn ítrekaði hvatningar til allra stríðandi fylkinga í Lýðveldinu Kongó að vernda óbreytta borgara. Hann minnti á skyldur þeirra samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og alþjóðlegum mannréttindalögum

Bakgrunnur átakanna 

Tvö ríki kenna sig við Kongófljótið í Afríku. Minna ríkið er einfaldlega nefnt Kongó og hið stærra Lýðstjórnarlýðveldið Kongó. (oft skammstafað DRC). Hið síðarnefnda er næst stærsta land Afríku og ellefta stærsta land heims. Alls nær landið yfir 2.34 milljón ferkílómetra eða alíka og Grænland og Ísland samanlagt. Íbúafjöldinn er talinn vera um 110 milljónir.

Konur á leið á markað til að selja ávexti í Popokabaka í Bandundu-héraði.
Konur á leið á markað til að selja ávexti í Popokabaka í Bandundu-héraði. Mynd: OCHA Gemma Cortes

Mikinn auð er að finna í fylgsnum jarðar í austurhluta landsins. Það er engin tilviljun að það er einmitt þar sem ekki færri en 122 uppreisnarherir berjast gegn miðstjórnarvaldinu. Erlendir herir, ekki síst frá Rúanda, hafa einnig tekið þátt í átökum frá því þau brutust fyrst út fyrir um þremur áratugum. Sú var raunin 1996 en talið er að átökin þá í Austur-Kongó hafi kostað nærri sex milljónir manna lífið. Rúanda hefur orðið uppvíst að stuðningi við svokallaða M23 vígasveitir.

Hvergi í heiminum hafa eins margir lent á vergangi innan landamæra eigin ríkis eða 5.7 milljónir manna.

Sjá nánar hér.