Íran. Bandaríkin. Ísrael. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur krafist óháðrar rannsóknar á loftárás á stúlknaskóla í Íran, sem kostaði að minnsta kosti 150 lífið.
„Mannréttindastjórinn hvetur til tafarlausrar, óháðrar og rækilegrar rannsóknar á kringumstæðum árásarinnar,“ sagði.Ravina Shamdasani, talsmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum í yfirlýsingu.
Algjörlega hryllilegt
„Í mannskæðasta – og átakanlegasta – atvikinu voru tugir stúlkna að sögn drepnar og særðar þegar grunnskóli þeirra í Minab í suðurhluta landsins varð fyrir árás á skólatíma,“ sagði Shamdasani á blaðamannafundi í Genf.

Hún bætti við: „…ég meina, börn, litlar stúlkur á miðjum skóladegi, í upphafi skóladags, drepnar með þessum hætti, skólatöskur með, þú veist, blóðblettum á sér. Þetta er algjörlega hryllilegt. Og ég held að ef það er einhver mynd sem fangar kjarna eyðileggingarinnar, örvæntingarinnar, tilgangsleysisins og grimmdarinnar í þessum átökum, þá eru það þessar myndir.“
Átök ekki óumflýjanleg
Shamdasani sagði einnig að koma hefði mátt í veg fyrir þjáningar milljóna manna í Mið-Austurlöndum vegna stríðsátaka milli Bandaríkjanna, Ísraels og Írans.
„Óttinn, skelfingin og kvíðinn sem milljónir manna í Mið-Austurlöndum og víðar upplifa er áþreifanlegur – og var ekki óumflýjanlegur. Ástandið versnar og breiðist út með hverri klukkustund og versti ótti okkar er að rætast,“ sagði Shamdasani, talsmaður OHCHR, Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, á blaðamannafundi.
Viðræður eina leiðin
„Mannréttindastjórinn hvetur alla aðila til að snúa aftur að samningaborðinu, sem er „eina leiðin til að binda enda á dráp, eyðileggingu og örvæntingu“.
Hún segir að Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, sé djúpt sleginn yfir afleiðingum hinna víðtæku stríðsátaka á almenna borgara og borgaralega innviði frá því að átökin brutust út á laugardag með árásum Ísraels og Bandaríkjanna á Íran, viðbrögðum Írans gegn ríkjum víðs vegar um svæðið, auk þess sem Hezbollah blandaðist í kjölfarið í átökin.
Óttast fjöldaflótta
Á sama tíma hefur Amy Pope, framkvæmdastjóri Alþjóðastofnunar um fólksflutninga (IOM), varað við hættu á fólksflótta innanlands vegna stigvaxandi átaka á svæðinu. Hún hefur hvatt alþjóðasamfélagið til að bregðast strax við til að koma í veg fyrir frekari mannlegar þjáningar þar sem spenna magnast í Íslamska lýðveldinu Íran og víðar um Mið-Austurlönd og víðar, þar sem þegar viðkvæmt ástand vegna fólksflótta er í hættu á að versna enn frekar.
„Stigmögnun hernaðaraðgerða myndi neyða fleiri fjölskyldur frá heimilum sínum og koma hart niður á almennum borgurum,“ sagði Pope framkvæmdastjóri. „Milljónir eru þegar á flótta innan svæðisins. IOM fylgist með ástandinu og er í viðbragðsstöðu til að veita lífsbjargandi aðstoð þar sem því verður við komið. Afstigun er mannúðarnauðsyn.“
IOM í viðbragðsstöðu
Víðs vegar um Mið-Austurlönd búa nú þegar meira en 19 milljónir manna á vergangi innanlands vegna átaka, ofbeldis og hamfara.
Aðgerðateymi IOM er á vettvangi og fylgist náið með þróun fólksflótta í Íran og víðar um svæðið. Teymið er í viðbragðsstöðu, tilbúið til að auka viðbúnað og aðgerðagetu til að veita lífsbjargandi aðstoð og vernd ef þörf krefur.
(Færslan hefur verið uppfærð)
