Sterkar fyrirmyndir
Þá beindi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sjónum sínum sérstaklega að jafnréttismálum á Íslandi og undirstrikaði mikilvægi þess að eiga sterkar fyrirmyndir. Árangur Íslands í jafnréttismálum væri fyrst og fremst að þakka öllum konunum sem ruddu brautina.
„Þegar ég var að alast upp var forseti Íslands kona. Og ég gerði bara ráð fyrir því að forsetar væru almennt kvenkyns. Ég þekkti ekkert annað. Fyrirmyndir skipta máli,“ sagði Kristrún, og vísaði þar til Vigdísar Finnbogadóttur, sem var fyrst kvenna í heiminum lýðræðislega kjörin forseti.
Kristrún benti jafnframt á hvernig hröð framganga kvenna í íslenskum stjórnmálum hafi tryggt mikilvæg réttindi, eins og t.d. fæðingarorlof fyrir báða foreldra og almenna leikskólavist fyrir börn.
Ísland er ekki fullkomið
„Stærsti sigurinn er þó eflaust sá að kyn er varla lengur skilgreinandi þáttur í lífi og starfi á Íslandi. Það sem skiptir mestu máli er að fólk sinni sínum skyldum af hæfni og heilindum. Ég leiði samsteypustjórn þriggja flokka, sem öllum er stýrt af konum. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar er kona. Forseti Íslands og forseti Alþingis eru konur. Og þó að þetta sé sögulegt kippum við Íslendingar okkur varla upp við það,“ sagði forsætisráðherra.
„En Ísland er ekki fullkomið. Kynbundið ofbeldi er mikið áhyggjuefni. Og á meðan umönnunarstörf eru ekki metin að verðleikum – sem grunnstoðir samfélagsins – munum við áfram búa við kynbundinn launamun.“
Ávarp forsætisráðherra í heild (á ensku)
Hægt er að horfa á ávarpið hér. (hefst á 03:20:45 í myndbandinu)
Sjá um fund forsætis- og utanríkisráðherra með António Guterres aðalframkvæmdastjóra hér.
