Kvenleiðtogar sameinast gegn COVID-19

0
609
Fótbolti fyrir markmiðin
Amina Mohammed, vara-aðalframkvæmdastjóri SÞ

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs var á meðal kvenleiðtoga sem fylktu sér að baki  Rise for All  – átaki Sameinuðu þjóðanna um félagslega og efnahagslega endurreisn sem hleypt var af stokkunum í gær.

„Við erum í miðri meiriháttar kreppu,“ sagði Solberg í ávarpi á myndbandi. „Kórónaveiran þekkir engin landamæri. Í alheimsþorpi okkar er samstaða eini kosturinn. Alþjóðlegar stofnanir og ríkistjórnir verða að vinna saman.“

Átakið er til stuðnings nýstofnuðum sjóði Sameinuðu þjóðanna í þágu andsvara og endurreisnar vegna kórónaveiru-faraldursins (UN Response and Recovery Fund).

Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði þegar hún fylgdi átakinu úr hlaði í New York í gær að COVID-19 hefði greitt þróunarríkjum hefði verið „sérstaklega þungt högg“. Ekki sist þeim sem glíma þegar við hamfarir eða styrjaldarátök.

„Andspænis víðtækri ógn af sögulegri stærðargráðu, verður sameiginlegt andsvar okkar að vera jafn brýnt og sögulegt,“ sagði Mohammed.

Konur hafa orðið harðast úti í faraldrinum. Jafnframt hafa þær verið í fararbroddi við að bjarga mannslífum á sjúkrahúsum og við að finna lausnir í í nýsköpun og uppfinningum að ógleymdum pólitískum kvenleiðtogum.

Stefnt er að því að safna einum milljarði Bandaríkjadala í fyrrnefndan sjóð á vegum aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjðoanna á fyrstu níu mánuðunum og tveimur milljörðum í allt.

„Við megum engan tíma missa,“ sagði Mohammad, venjulegir tímafresti sem Saminuðu þjóðirnar og fjárveitendur vinna eftir duga ekki í þessu tilfelli.