A-Ö Efnisyfirlit

Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum færist í vöxt í Kongó

Átján ára gömul tveggja barna fær aðstoð í Lýðveldinu Kongó
Átján ára gömul tveggja barna fær aðstoð í Lýðveldinu Kongó. Mynd: UNICEF/UNI915862/Mirindi Johnson

 Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC) er útbreitt, kerfisbundið og færist í vöxt að sögn Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

Í skýrslu sem kom út um áramótin segir að þótt átökin í landinu séu veigamesti orsakaþátturinn, hefði kynferðislegt ofbeldi gegn börnum aukist verulega um allt landið frá 2022.

Rúmlega 35 þúsund tilfelli voru skráð fyrstu níu mánuði 2025. Þau voru ærri 45 þúsund árið 2024. Það eru 40% allra kynferðislegs ofbeldis-mála, þrisvar sinnum meira en 2022.

Sautján ára gömul stúlka sem nauðgað hefur verið ásamt barni sínu í Austur-Kongó.
Sautján ára gömul stúlka sem nauðgað hefur verið ásamt barni sínu í Austur-Kongó.Mynd: UNFPA/Junior Mayindu

Ótti við smánun og hefnd

Búast má við að í reynd sé þetta vandamál enn alvarlegra, því gera má ráð fyrir að ekki fréttist af nándar nærri öllum málum eða þau komi til kasta yfirvalda. Ótti, smánun, óöryggi og skortur á aðgangi að þjónustu hindra fórnarlömb í að segja frá eða leita hjálpar.

„Starfsfólk hefur sagt frá mæðrum sem leggja á sig margra klukkustunda ferð fótgangandi með dætur sem ekki geta gengið eftir árás. Fjölskyldur skýra frá því að þær segi ekki frá af ótta við hefnd og smánun,” segir Catharine Russell forstjóri UNICEF.

Sautján ára stúlka sem orðið hefur viðskila við fjölskyldu sína
Sautján ára stúlka sem orðið hefur viðskila við fjölskyldu sína. Mynd: Photo: UNICEF

Ákveðið mynstur skín í gegn þegar rýnt er í frásagnir. Flest dæmin eru frá norður og suður Kivu og Ituri þar sem átök geisa og fólk hefur flosnað upp. En einnig er mikil tíðni slíks ofbeldis í Kinshasa og Kasai. Stúlkur eru berskjaldaðar þar fyrir misnotkun og snemmbærum giftingum vegna fátæktar, fæðu óöryggis og uppflosnunar úr skólakerfinu.

Unglingsstúlkur verða mest fyrir barðinu á kynferðislegu ofbeldi. Drengir eru færri í hópi fórnarlamba. Börn með fötlun eru mjög berskjölduð fyrir ofbeldi.

Niðurskurður

Fórnarlömb glíma oft við alvarlega líkamleg meiðsli, þungun, hættu á HIV smiti og öðrum kynsjúkdómum. Þá er ótalinn tilfinningalegur skaði, ótti, kvíði, þunglyndi og félagsleg útskúfun úr fjölskyldum og samfélögum. Lífsbjargandi úrræði eru af skornum skammti.

UNICEF ásamt ríkisstjórn og samstarfsaðilum leitast við að ná til barna og sjá þeim fyrir öruggum svæðum, og félags-sálfræðilegum stuðningi. Frá 2022 til 2024 hefur börnum sem hafa lifað af kynferðislegt ofbeldi og njóta stuðnings UNICEF fjölgað um 143%.

Því miður hefur UNICEF orðið að minnka stuðningi við starfsemi eða hætta við verkefni á borð við örugg svæði og færanlegar heilsugæslustöðvar. Um mitt ár 2025 hafði aðeins 23% verkefni á sviði kynferðislegs ofbeldis verið fjármögnuð. Af þeim ástæðum munu hundruð þúsunda barna, þar á meðal 300 þúsund á átakasvæðum í austurhéruðum Kongó verða af lífsbjargandi stuðningi.

Sjá nánar hér.