A-Ö Efnisyfirlit

Launamunur kynjanna: Norðurlönd ekki á toppnum

Höggmyndin Kópakonan eftir Hans Pauli Olsen á Kalsoy í Færeyjum
Höggmyndin Kópakonan eftir Hans Pauli Olsen á Kalsoy í Færeyjum. Mynd: Marita Hoydal/norden.org

 Alþjóðlegi kvennadagurinn. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. 

Þrjátíu árum eftir að samþykkt var á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Beijing að brúa launabilið á milli kynjanna, er enn langt í land.  Konur fá 23% minna en karlar að meðaltali fyrir sömu vinnu í heiminum og bilið er enn breiðara hjá konum með börn á framfæri.  

Að mati Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, þá fengu konur að meðaltali 12% minna en karlar í tímakaup árið 2023 í ESB og Evrópska Efnahagssvæðinu. Ísland (9.8%) stendur sig best Norðurlandanna. Í Svíþjóð (11.2%) er launamunurinn einnig minni en að meðaltali í ESB/EES-ríkjunum, en hann er meiri í Noregi (12.8%)  Danmörku (14%), og Finnlandi (16.8%).

Druslaganga.
Druslaganga. Mynd: Dager / norden.org

Minnsti launamunurinn, raunar konum í hag, er í Lúxemburg (-0.9) en Belgía (0.7%), Ítalía (2.2%) og Rúmenía (3.8%) fylgja í kjölfarið.

Mestur launamunur er í Austurríki (18.3%), Tékklandi (18%), Ungverjalandi (17.8%), Þýskalandi (17.6%), Sviss (17.2%) og Eistlandi (16.9%).

Lúxemburg á toppnum, en ….

Í Lúxemburg hefur launabili kynjanna verið brúað, og vel það, að mati Eurostat.

Lúxemburg.
Lúxemburg. Mynd Cedric Letsch/Unsplahs

Hins vegar slær hagstofa Lúxemburgar (STATEC) varnagla.  „0.9% munur konum í vil mælist þegar tímakaup er skoðað, en hins vegar eru tekjur karla hærri þegar árstekjur eru annars vegar. Þar kemur inn í að fleiri karla eru á háum launum og fá bónusa, en konur vinna mun oftar í hlutastörfum.“

Ítalía kemur á eftir Lúxemburg og Belgíu og sker sig úr í hópi suður-Evrópuríkja. Munurinn á tímakaupi kynjanna er mun lægri þar (2.2%) en í Portúgal (8.6%), Spáni (9.6%) Frakklandi (12.2%) og Grikklandi (13.6%) og að mati Eurostat.

23% launamunur er á milli kynjanna á heimsvísu.
23% launamunur er á milli kynjanna á heimsvísu. Mynd: UN Women

Hvers vegna er launamunurinn svo þrálátur?

Launamunurinn er birtingarmynd þráláts óföfnuðar að sögn Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna UN Women. Konur, sérstaklega farandkonur, eru hlutfallslega fleiri en karlar í óopinbera geiranum og þar með í ótryggum láglaunastörfum þar sem vinnuskilyrði eru slæm og félagsleg réttindi lítil.

Konur sinna umönnunarstörfum þremur klukkustundum lengur á dag en karlar. Þar á meðal eru heimilisstörf,, umönnun barna og aldraðra. Konum er refsað fyrir barneignir því mæður með börn fá oft verst launuðu störfin. Staðal kynjaímyndir, mismunun í ráðningum og stöðuhækkunum auka einnig á kynbundinn launamun.

(Greinin var uppfærð eftir að nýjustu tölur komu frá Eurostat um árið 2023)

Sjá einnig hér, hér og hér.