Rúmlega 660 þúsund konur eru greindar árlega í heiminum með leghálskrabbamein. Nærri 350 þúsund láta lífið af völdum þess. Hins vegar væri oft hægt að koma í veg fyrir þetta krabbamein með bólusetningu við HPV-veirunni og skimun. 17.nóvember er Alþjóðlegur dagur leghálskrabbameins.
Leghálskrabbamein er 4.algengasta krabbamein hjá konum. Vörtuveira (HPV) HPV er langalgengasta orsök þess eða í 95% tilfella.
HPV er algeng veira og smitast við kynmök. Oftast losar líkaminn sig við HPV, en ef það gerist ekki getur veiran valdið krabbameini. En þannig þarf þetta EKKI að vera!
Metnaðarfull áætlun
Metnaðarfull, samræmd og alhliða stefna hefur verið þróuð með það að markmiði að útrýma leghálskrabbameini sem lýðheilsuvá. Forstjóri Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar tók saman áætlun um að útrýma leghálskrabbameini í heiminum (Global Strategy for cervical cancer elimination) og var hún samþykkt á Alþjóða heilbrigðismálaþinginu í ágúst 2020.
Talan 90 vísar til þess markmiðs að 90% af stúlkum verði bólusettar fyrir 15 ára aldur við HPV fyrir 2030. 70 vísar til þess markmiðs að fyrir sama tíma verði 70% kvenna skimaðar 35 ára og aftur 45 ára gamlar. 90 vísar svo til þess stefumiðs að 90% kvenna með leghálskrabba njóti meðferðar.
Alþjóðlegur dagur leghálskrabbameins
Mikilvægt er að hafa í huga að fáir sjúkdómar endurspegla eins vel ójöfnuð í heiminum og leghálskrabbamein. 94% dauðsfalla af völdum þessa krabbameins urðu í lag- og meðaltekjuríkjum. Þar er aðgangur að heilbrigðiskerfinu takmarkaður og skimun og meðferð ekki útbreidd.
Á Alþjóðlegum degi leghálskrabbameins er ástæða til að hverja konur til að láta bólusetja sig, skima og hvetja aðrar konur til að gera slíkt hið sama.
