Félagsmálaráðstefna Sameinuðu þjóðanna. Leiðtogar ríkja samþykktu í dag pólitíska yfirlýsingu á öðrum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um félagslega þróun í Doha í Katar. Andspænis vaxandi spennu í heiminum og auknum ójöfnuði slær Doha yfirlýsing Félagsmálaráðstefnunnar tóninn í endurnýjun hnattrænna skuldbindinga um að byggja upp réttlátari samfélög.
Samþykkt Doha-yfirlýsingarinnar á Félagsmálaráðstefnunni felur í sér sameiginlega skuldbindingu ríkisstjórna um að ráðast til atlögu gegn fátækt, skapa mannsæmandi störf, efla jafnrétti og vernda mannréttindi. Í henni er undirstrikað að félagsleg þróun er ekki aðeins siðferðilegt markmið heldur hornsteinn friðar, stöðugleika og sjálfbærs hagvaxtar.
Félagsmálaráðstefnan: yfirlýsing slær tóninn
„Sönn þróun snýst ekki aðeins um velmegun fárra,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þóðanna á blaðamannafundi við upphaf ráðstefnunnar 4.-6.nóvember. „Hún felur í sér tækifæri fyrir fjöldann, sem byggir á félagslegu réttlæti, fullri atvinnu og mannlegri reisn.“

Guterres kallaði Doha-yfirlýsinguna „vítamínsprautu fyrir þróun“ og „áætlun fólksins.“ Hann benti sérstaklega á að efla þurfi aðgerðir til að binda enda á fátækt og ójöfnuð með öflugri félagslegum kerfum. Skapa þyrfti mannsæmandi störf. Leysa úr læðingi fjármagn fyrir þróunarríki með umbótum á alþjóðlegum kerfum og eftirgjöf skulda.
Rúmlega 40 oddvitar ríkja og ríkisstjórna, 170 með ráðherrartign, fulltrúar alþjóðasamtaka, æskulýðssamtaka og borgaralegs samfélags eru á meðal þátttakenda í ráðstefnunni í Doha, alls fjórtán þúsund manns.
30 árum eftir Kaupmannahöfn
Fundurinn er haldinn þrjátíu árum eftir að tímamótayfirlýsing var samþykkt á Félagsmálaráðstefnnunni í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma hefur félagsleg þróun tekið miklum stakkaskiptum og loftslagsbreytingar, heimsfarsóttir og fólksflutningar sett svip sinn á hana að ekki sé minnst á stafrænu byltinguna og gervigreind.
Í pólitísku yfirlýsingu Doha er þráður tekinn upp frá 1995 til að svara margslungnum áskorunum dagsins í dag. Þar er hvatt til almennrar félagslegrar verndar með kynjasjónarmið að leiðarljósi. Jafnframt auknum og jöfnum aðgangi að heilsugæslu og menntun. Þá er lögð áherslu á nauðsyn þess að mæta rangfærslum og hatursáróðri sem ógna lýðræðislegum gildum.
Í yfirlýsingunni er einnig lögð áhersla á miklvægi öryggis og inngildingar í stafrænum umskptum. Minnt er á nauðsyn þess að æskulýður, eldra fólk, fólk með fötlun, frumbyggjar og aðrir hliðsettir hópar séu virkir í að móta stefnu sem hefur áhrif á líf þeirra.
