Fyrsti leiðtogafundur um flóttamenn og farandfólk

0
462
summit image slider graphic 0

summit image slider graphic 0

19. september 2016. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hýsir í dag mánudaginn 19.september fyrsta alheimsleiðtogafund sögunnar um málefni flóttamanna og farandfólks.

Markmiðið er að fylkja þjóðum heims um mannúðleg og samhæfð viðbrögð við umfangsmiklum fólksflutningum.Summit refugees
Ætlunin er að þessi fyrsti fundur yfirmanna ríkja og ríkisstjórna um málefni samþykki vegvísi um hvernig bregðast skuli við umtalsverðum hreyfingum flóttamanna og farandfólks.

Markmið vegvísisins er að efla alþjóðleg viðbrögð og stýringu alþjóðlegra fólksflutninga með því að koma á fót ábyrgara og fyrirsjáanlegra kerfi til þess að bregðast við umfangsmiklu fólksflutningum, flóttamanna og farandfólks.

LykketoftEvrópuríki hafa glímt við komu rúmlega einnar milljónar flóttamanna á undanförnum mánuðum. Fjölmiðlar hafa beint sjónum að ferðum fólksins yfir Miðjarðarhafið, en þó má ekki gleyma því að langstærstur hluti fólks sem flosnað hefur upp, hefur leitað á náðir lág-til miilitekjuríkja nær átakasvæðum.

„Það sem stefnt er að og vonast er eftir að gerist á leiðtogafundinum er að ríki ítreki og efli skuldbindingar sínir um að greiða fyrir lausn málefna flóttamanna og farandfólks, hvort tveggja með því að hjálpa nauðstöddu fólki og styðja við bakið á þeim ríkjum sem bera þyngstu byrðarnar,“ segir Mogens Lykketoft, forseti 70.Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í viðtali við Norræna fréttabréf UNRIC.

Fastafulltrúar Jórdaníu og Írlands, Dina Kawar og David Donoghue, tóku að sér að greiða fyrir samkomulagi um lokayfirlýsingu og náðist samstaða í byrjun ágúst um svokallaða New York yfirlýsingu. Á meðal helstu skuldbindinga sem hin 193 aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna tókust á herðar eru:

  • Að verja mannréttindi allra flóttamanna og farandfólk án tillits til stöðu þeirra.Summit refugees3
  • Að tryggja að öll börn í hópi flóttamanna og farandfólks njóti kennslu innan fárra mánaða frá komu.
  • Að styðja við bakið á þeim ríkjum sem bjarga og taka við miklum fjölda flóttamanna og farandfólks.
  • Að vinna að því að binda enda á að börn séu hneppt í varðhald vegna innflytjenda-stöðu sinnar.
  • Að fordæma útlendingahatur og efna til herferðar gegn slíkum hugmyndum.
  • Að kanna möguleika á reglubundnari og skipulagðari flutningum farandfólks og auka með því öryggi fólksins og efla reisn. 
  • Að auki er stefnt að því að samþykktur verði alþjólegur rammasamningur um stýringu fólksflutninga fyrir 2018. Jafnframt verði komið upp kerfi til þess að jafna skiptingu ábyrgðar á hýsingu flóttamanna í heiminum fyrir 2018.

Munurinn á flóttamönnum og farandfólki

Fundinn sækja oddvitar ríkja og ríkisstjórna, ráðherrar og fórkólfar Sameinuðu þjóða-kerfisins, forystufólk borgaralegs samfélags, einkageirans, SUMMIT REFUGEES2alþjóðasamtaka, háskólasamfélags og fleiri.

Samhliða störfum Allsherjaþingsins verður einnig haldinn leiðtogafundur 20.september um málefni flóttamanna sem Barack Obama, forseti Bandaríkjanna boðar til ásamt ríkisstórnum Kanada, Eþíópíu, Þýskalands, Jórdaníu, Mexíkó og Svíþjóðar. Þar er vonast til að ríki gefi ný fyrirheit um málefni flóttamanna.

Leiðtogafundur Obama mun einskorða sig við mál flóttamanna, en Allsherjarþingið mun fjalla um bæði málefni.
Þótt oft sé talað í sömu andrá um málefni flóttamanna og farandfólks, er grundvallarmunur á stöðu hvors hóps fyrir sig.

  • Flóttamenn (refugees) teljast þeir sem hafa flúið heimaland sitt af ótta við við ofsóknir, átök, ofbeldi eða aðrar kringumstæður sem hafa truflað umtalsvert almenna reglu.
  • Farandfólk (migrants) er aftur á móti fólk sem hefur yfirgefið heimaland sitt, án tillits til orsaka eða lagalegrar stöðu slíkra vistaskipta.
    • Lesið meira um leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna hér Fylgjast má með leiðtogafundinum í beinni útsendingu á netinu hér á webtv.un.org.
    • Myndir: 1.) 70.Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna UN Photo. 2.)Mogens Lykketoft, forseti 70.Allsherjarþingsins UN Photo 3.,4 og 5) Flóttamenn á Lesbos, júní 2016. UN Photo/Rick Bajornas.