A-Ö Efnisyfirlit

Leitin að látnum heldur áfram á Gasasvæðinu

Palestínsk almannavarnarsveit leitar að líkamsleifum fórnarlamba undir rústum, meira en tveimur árum eftir að árás var gerð á byggingu. Mynd: UN news
Palestínsk almannavarnarsveit leitar að líkamsleifum fórnarlamba undir rústum, meira en tveimur árum eftir að árás var gerð á byggingu. Mynd: UN news

Gasasvæðið. Leitin að líkamsleifum þúsunda manna sem saknað er heldur áfram á Gasasvæðinu. Jarðneskar leifar eru enn grafnir undir rústum heimila sem eyðilögðust í loftárásum Ísraela. Þúsundir bygginga eyðilögðust á stríði Ísraels og Hamas og hið erfiða og vandasama verk að fjarlægja rústir og leita látinna er enn skammt á veg komið.

Tíminn sem liðinn er og alvarlegur skortur á stórvirkum vinnuvélum hafa gert leit og björgunaraðgerðir sífellt erfiðari og flóknari.

Í einu af hverfum Gasaborgar heldur stórvirk vinnuvél áfram að fjarlægja rústir húss sem eyðilagðist í stríðinu.

Á meðan halda almannavarnir og hópar heimamanna áfram að grafa og kemba rústirnar í leit að líkamsleifum fórnarlamba sem talin eru hafa verið grafin undir rústunum í meira en tvö ár.

 Ramez Nabhan missti eiginkonu sína, börn og nokkra fjölskyldumeðlimi í stríði Ísraels og Hamas. Mynd: UN news
Ramez Nabhan missti eiginkonu sína, börn og nokkra fjölskyldumeðlimi í stríði Ísraels og Hamas. Mynd: UN news

„Talið var að í þessari byggingu væru líkamsleifar 44 fórnarlamba,“ sagði Asaad Shreim, meðlimur í einum leitarflokki. „Hingað til höfum við aðeins náð að finna 13 þeirra, en íbúar og almannavarnir náðu að bjarga flestum á fyrstu klukkustundunum eftir sprengjuárásina.“

Bíður þess að finna líkamsleifar fjölskyldu sinnar

Leitar- og björgunarsveitir búa yfir takmörkuðum úrræðum.

Sameinuðu þjóðirnar staðfesta að flutningur á milljónum tonna af steypu er hindraður vegna takmarkana Ísraela á innflutningi stórvirkra vinnuvéla, auk hættunnar sem stafar af ósprengdum sprengjum sem dreifðar eru meðal rústanna. Allt þetta hægir á því að hægt sé að komast að og ná líkamsleifum fórnarlamba.

Ramez Nabhan er einn þeirra sem bíður eftir að finna líkamsleifar fjölskyldumeðlima sinna sem létust í sprengjuárás á bygginguna þar sem þau dvöldu á fyrstu dögum stríðsins.

„Ég var faðir þriggja barna og átti eiginkonu, og ég missti þau öll í byrjun stríðsins,“ sagði Nabhan. „Nokkrar eldflaugar féllu á þessa byggingu og íbúar og almannavarnir náðu að bjarga nokkrum líkum, þar á meðal syni mínum, frænda mínum og konu hans.“

 Líkamsleifar nokkurra meðlima fjölskyldu Ramez Nabhan, eftir að staðbundnum sveitum tókst að ná þeim undan rústunum. Mynd: UN news
Gasasvæðið: Líkamsleifar nokkurra meðlima fjölskyldu Ramez Nabhan, eftir að staðbundnum sveitum tókst að ná þeim undan rústunum. Mynd: UN news

Gasasvæðið: Útfarir sem hafa dregist lengi

Nabhan segir að skortur á stórvirkum vinnuvélum og eldsneyti á fyrstu mánuðum stríðsins hafi komið í veg fyrir að hægt væri að bjarga mörgum fórnarlömbum tímanlega.

„Það var enginn búnaður til að ná líkum, ekkert eldsneyti eða nauðsynleg úrræði voru tiltæk og aðstæður voru ekki öruggar fyrir björgunarsveitir til að starfa,“ sagði hann. „Við biðum lengi og í dag stöndum við frammi fyrir nýrri raun: að ná líkamsleifunum og jarða þær síðan.“

Í leitinni tókst leitarflokkum að finna nokkra af fjölskyldumeðlimum hans og voru líkamsleifar þeirra settar í sérstaka poka til undirbúnings fyrir auðkenningu og til að ljúka við útfararathafnir.

Sárið opnast á ný

Fyrir þúsundir fjölskyldna á Gasasvæðinu lýkur harmleiknum ekki með missi ástvina, heldur bætist við löng bið eftir að ná líkamsleifum þeirra og jarða. Með hverjum uppgreftri endurnýjast sársauki missisins og áskoranirnar við að bera kennsl á fórnarlömbin verða sífellt augljósari.

„Það er afar erfitt að sárið opnist á ný,“ sagði herra Nabhan.

„Við lifum milli sársaukans við að endurupplifa missinn og útfararathafnanna. Þetta eru börnin mín og það eru engin orð sem geta lýst því sem ég finn innra með mér.“

Þúsunda er enn saknað

Eftir því sem tíminn líður verður sífellt flóknara að bera kennsl á líkamsleifar vegna náttúrulegrar rotnunar og takmarkaðrar getu réttarvísinda og DNA-prófana, sem lengir þjáningar fjölskyldna sem enn bíða eftir að fá vitneskju um afdrif ástvina sinna.

Rúmlega 71 þúsund Palestínumenn létust og rúmlega 171 þúsund særðust, samkvæmt nýjustu sameiginlegu skýrslu um tjón og þarfir sem gefin var út af Sameinuðu þjóðunum og samstarfsaðilum þeirra í apríl 2026.

Sameinuðu þjóðirnar telja að þúsunda manna sé enn saknað og talið er að margir séu enn grafnir undir rústum eyðilagðra bygginga innan um víðtæka eyðileggingu á innviðum og íbúðahverfum um allt Gaza.

Leitin mun halda áfram lengi enn.

Sjá einnig hér.