19.september 2016. Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra átti síðdegis í gær fund með Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í New York.
Lilja er stödd í New York sem fulltrúi Íslands á fyrsta leiðtogafundi samtakanna um málefni flótta- og farandfólks. Ávarpar Lilja fundinn síðdegis.
Á meðal þess sem bar á góma á fundi utanríkisráðherra og Ban voru jafnréttismál, staða flóttamanna og umhverfismál.
Í frétt frá utanríkisráðuneytinu segir að Ban Ki-moon hafi fært Íslendingum sérstakar þakkir fyrir að tala fyrir jafnréttismálum og leggja SÞ lið í því mikilvæga verkefni.
Lilja upplýsti hann um þingsályktunartillögur um fullgildingu Íslands á Parísar-samkomulaginu og samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hún lagði fyrir Alþingi fyrr í mánuðinum. Báðar tillögurnar verða teknar til síðari umræðu á Alþingi í dag.
Þá ræddu þau norðurslóðamál og loftslagsmál sem Ban Ki-moon hefur látið sig miklu varða. Þau verða meðal þess sem rætt verður á þingi Arctic Circle (Hringborði Norðurslóða) í byrjun október í Reykjavík en framkvæmdastjórinn er væntanlegur til Íslands, m.a. til að taka þátt í því.
Lilja utanríkisráðherra skrifar á facebook-síðu sinni í morgun að hún hafi ekki staðist mátið og spjallað við Ban Ki-moon, á kóresku en Lilja bjó um tíma í Suður-Kóreu.
„Hann gladdist og svaraði í sömu mynt, en færði sig fljótlega yfir í ensku,“ skrifar Lilja.
Mynd: UN Photo/JC McIlwaine