Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeldi. Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00, á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi, sem UN Women á Íslandi stendur að ásamt fjölda annarra félagasamtaka.

Ljósaganga UN Women á Íslandi verður leidd af hjónunum Maríu Rut Kristinsdóttur, þingkonu, og Ingileif Friðriksdóttur, aðstoðarmanni utanríkisráðherra og fjölmiðlakonu, auk Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi. María Rut og Ingileif hafa ítrekað orðið fyrir hatursfullum og meiðandi ummælum sökum starfa sinna, mannréttindabaráttu og kynhneigðar.
Ljósaganga UN Women á Íslandi endar við Bríetartorg, þar sem gestir geta yljað sér við heitt kakó og ljúfan söng Hljómfélagsins.(unwomen.is)
Til heiðurs Mirabal-systrum
Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeldi markar upphaf UNiTE-átaksins (25. nóv.–10. des.) — 16 daga átaks sem lýkur á alþjóðlega mannréttindadeginum (10. desember).
Baráttufólk fyrir réttindum kvenna hefur helgað 25. nóvember baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi frá árinu 1981. Dagsetningin var valin til að heiðra Mirabal-systurnar, þrjár pólitískar baráttukonur frá Dóminíska lýðveldinu sem voru myrtar á hrottalegan hátt árið 1960 að skipun einræðisherra landsins, Rafaels Trujillo (1930–1961).
