Nú þegar stærsta alþjóðlega ráðstefna um loftslagsbreytingar, COP31,stendur yfir er rafvæðing eitt helsta málið á dagskrá.
„Með alþjóðlega rafvæðingarheitinu okkar, 35 fyrir 35, stefnum við að því að auka hlut raforku í endanlegri orkunotkun í 35 prósent fyrir árið 2035,“ tilkynnti Murat Kurum, forseti COP31, en land hans, Tyrkland, stýrir viðræðunum ásamt Ástralíu.
Hvað felst í rafvæðingu og hvaða þýðingu gæti hún haft fyrir framtíð aðgerða gegn loftslagsbreytingum?
Horfið frá jarðefnaeldsneyti
Rafvæðing felur í sér að tækni og kerfum sem nota olíu, kol eða jarðgas beint yrði skipt út fyrir rafknúin.
Í reynd felur þetta í sér að skipta yfir í rafbíla, rafknúna strætisvagna og vörubíla. Það þýðir að nota skilvirkari hitunar- og kælikerfi, svo sem varmadælur í stað gaskatla og spanhelluborð í stað gashelluborða. Iðnaðurinn myndi skipta yfir í aðra kosti á borð við iðnaðarvarmadælur, rafkatla og rafmagnsofna.
Hlutur raforku í orkunotkun heimsins er nú um 23% og rafvæðingarheitið miðar að því að auka hann í 35%. Tyrkland hvetur allar ríkisstjórnir á COP31 til að undirrita heitið.
Hreinni orka
En rafvæðing er aðeins hálfur sigurinn.
Endurnýjanlegur orkugjafi er nauðsynlegur til að tryggja að hún skili raunverulegum árangri í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
„Við getum byggt upp framtíð sjálfstæðis í hreinni orku – eða fest aðra kynslóð í viðjum jarðefnaeldsneytis,“ sagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri SÞ, í ræðu á COP31. Hann kallaði eftir uppbyggingu „endurnýjanlegrar orku, raforkukerfa, orkugeymslu og hreinnar rafvæðingar á leifturhraða.“
Til að draga úr losun þarf nútímavædd raforkukerfi, samþætta innviði, aðlagaðar byggingar og lágkolefnissamgöngur.
Hvernig er raforka framleidd í dag?
Á heimsvísu eru kol stærsta uppspretta raforku, eða 34%, og jarðgas sú næststærsta með 21%. Hlutur orkugjafa með litla losun (endurnýjanlegrar orku og kjarnorku) hefur aukist og nam 43% árið 2025. Það er hæsta hlutfall síðustu 50 ára.
Árið 2024 kom 29% raforku í Evrópu frá jarðefnaeldsneyti. Meirihluti raforkunnar kemur frá lágkolefnisorkugjöfum, 48% frá endurnýjanlegri orku og 23% frá kjarnorku.
Hvers vegna þetta skiptir máli
Ein helsta ástæðan fyrir áherslunni á rafvæðingu er minni losun.
„Saman eru aðgerðir gegn metanlosun og rafvæðing kælipoki jarðarinnar – sem getur lækkað áætlaða hlýnun jarðar um hálfa gráðu,“sagði loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna Simon Stiell.
Hún gæti einnig bætt gæði loftsins sem við öndum að okkur, þar sem bruni jarðefnaeldsneytis veldur skaðlegri loftmengun.
Rafvæðing getur einnig bætt orkunýtni. Rafbílar geta ekið allt að þrisvar sinnum lengri vegalengd en bensínbílar fyrir sama verð.
Á síðasta áratug hefur kostnaður við endurnýjanlega orku lækkað verulega. Víðast hvar í heiminum er nú ódýrara að setja upp sólarorku en að reisa ný kola- eða gasorkuver. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallar þó eftir því að hrein raforka verði á viðráðanlegu verði og aðgengileg öllum.
„Jarðefnaeldsneyti hefur brugðist þegar kemur að því að tryggja öllum aðgang að orku. Hundruð milljóna manna búa enn án rafmagns. Þau mega ekki verða útundan í byltingu hreinnar orku,“ hvatti Guterres.
Hvers vegna er rætt um þetta núna?
Rafvæðing er ekki nýtt hugtak. Hún hefur þegar verið órjúfanlegur hluti af alþjóðlegri baráttu fyrir minni losun gróðurhúsalofttegunda.
Kreppan í Mið-Austurlöndum hefur undirstrikað áhættuna sem fylgir því að vera háð jarðefnaeldsneyti. Þrír af hverjum fjórum búa í löndum sem eru nettóinnflytjendur jarðefnaeldsneytis.
„Áfall í þúsunda kílómetra fjarlægð hækkar kostnað við samgöngur, rekstur fyrirtækja og að koma mat á borðið. Raunverulegt orkuöryggi felst í því að rjúfa þessa ósjálfstæði. Hrein raforka getur gert það,“ undirstrikaði Guterres.
Hröð fjölgun gagnavera um allan heim hefur einnig skapað fordæmalausa eftirspurn eftir rafmagni og gert er ráð fyrir að orkunotkun þeirra tvöfaldist fyrir árið 2030.
Hvað er þegar verið að gera?
Rafvæðing og umskipti yfir í notkun hreinnar orku eru þegar hafin.
Árið 2025 voru rafknúin ökutæki meira en fjórðungur af sölu nýrra bíla á heimsvísu, samanborið við innan við 3 prósent árið 2019. Í Noregi eru nú nær eingöngu seldir rafbílar.
Aðgerðaáætlun ESB um rafvæðingu miðar að því að gera Evrópu að fyrstu rafknúnu heimsálfunni og stefnir að því að 46% orkunotkunar verði rafknúin fyrir árið 2040.
Á Írlandi sá vindorka fyrir um þriðjungi af raforku Írlands árið 2024, sem er fjórfalt heimsmeðaltalið.
Bretland, sem varð fyrst G7-ríkja til að hætta raforkuframleiðslu með kolum árið 2024, tilkynnti að það hefði tryggt sér meira en 100 milljarða punda í einkafjárfestingum í hreinni orku.
Á COP31 vonast Guterres til þess að ríki gangi enn lengra:
„Við höfum tæknina. Við höfum efnahagsleg rök. Nú þurfum við pólitískan vilja til að hrinda þessu í framkvæmd.“
