A-Ö Efnisyfirlit

Kallað eftir samningi um loftslagsréttlæti

© UN News/Laura Quinones Sólarupprás yfir COP31 þegar þátttakendur mættu strax klukkan fimm að morgni til að forðast lokanir gatna.
Sólarupprás yfir COP31 þegar þátttakendur mættu strax klukkan fimm að morgni til að forðast lokanir gatna.© UN News/Laura Quinones

Loftslagsréttlæti. Skattlagning. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kallaði á miðvikudag eftir nýjum alþjóðlegum samningi um loftslagsréttlæti á COP31. Hvatti hann ríkisstjórnir til að skattleggja jarðefnaeldsneytisfyrirtæki til að aðstoða ríki sem bera hitann og þungann af kreppu sem þau áttu lítinn þátt í að valda.

Ákall hans kom þegar leiðtogar heims komu saman í Antalya á meðan spurningum um loftslagsfjármögnun og framtíð jarðefnaeldsneytis er enn ósvarað.

Þetta var helst í dag á COP31:

  • Leiðtogafundur: Guterres kallar eftir loftslagsréttlæti og sköttum á olíurisa.
  • Samningaviðræður: Ágreiningur ríkir enn um fjármögnun aðlögunar.
  • Dagur án sóunar: Metan og nýstárlegar lausnir í brennidepli umræðnanna.
  • Murat Kurum forseti COP31 (Tyrklandi) og aðalsamningamaður ráðstefnunnar Chris Bowen (Ástralíu).
    Murat Kurum forseti COP31 (Tyrklandi) og aðalsamningamaður ráðstefnunnar Chris Bowen (Ástralíu). Mynd:: © UN Climate Change – Kiara Worth

    Gangar ráðstefnustaðar COP31 í Antalya voru troðfullir í dag þegar leiðtogar heims mættu á tveggja daga leiðtogafund, sem hafði í för með sér hertar öryggisráðstafanir, lokanir gatna og snemmbúna byrjun hjá fulltrúum, en sumir þeirra komu á staðinn strax klukkan fimm að morgni.

Þeir sem mættu fyrir dögun fengu að launum stórfenglega sólarupprás. Síðar, við opnunarathöfnina, gáfu hefðbundnir tyrkneskir dansar, litrík skemmtiatriði, myndbönd og jafnvel sérstakt COP31-lag athöfninni óvenju hátíðlegan blæ, miðað við samkomu þar sem tekist er á við eina brýnustu kreppu heims.

COP31 í Antalya. Mynd: COP31
COP31 í Antalya. Mynd: COP31

En eftirminnilegustu skilaboð dagsins komu frá aðalframkvæmdastjóranum, sem sakaði mengunarvalda um að tefja aðgerðir og varaði enn á ný við því að loftslagskreppan þróist hraðar en alþjóðlegar tilraunir til að hemja hana.

„Jörðin okkar er að hitna. Tíminn er að renna út. Nú er að duga eða drepast,“ sagði hann og minnti leiðtoga heims á að jafnvel þótt núverandi landsáætlanir yrðu að fullu framkvæmdar stefni jörðin í meira en 2,5 °C hlýnun fyrir lok aldarinnar.

Hann lagði þó áherslu á að þótt farið yrði yfir 1,5 °C mörkin þýddi það ekki að gefast upp. „Vísindin segja okkur ekki að gefast upp. Þau segja okkur að berjast af enn meiri krafti,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn og undirstrikaði að hvert brot úr gráðu hlýnunar sem tekst að forðast skipti máli.

Nýr samningur um loftslagsréttlæti

Í því ljósi lagði aðalframkvæmdastjórinn til „sáttmála um loftslagsréttlæti“ til að hjálpa þróunarríkjum að hverfa frá jarðefnaeldsneyti og vernda um leið þá sem þegar líða fyrir loftslagsbreytingar.

„Við getum ekki krafist þess að ríki umbreyti hagkerfum sínum en neitað þeim um leiðir til þess,“ sagði hann.

Fyrirhugaður sáttmáli byggist á fjórum forgangsatriðum:

  • Hraða umskiptum frá jarðefnaeldsneyti með landsáætlunum sem vernda launafólk og samfélög, samhliða aukinni notkun endurnýjanlegrar orku.
  • Vernda viðkvæma hópa með viðvörunarkerfum, öflugri aðlögunaraðgerðum og skjótari stuðningi eftir loftslagshamfarir.
  • Tryggja viðráðanlega loftslagsfjármögnun, þar sem auðug ríki standa við skuldbindingar sínar og meiri fjárfesting berst til þróunarríkja.
  • Efla alþjóðlega samvinnu til að yfirstíga viðskiptahindranir, tæknilegt misræmi og landfræðipólitíska samkeppni.

    Hópmynd af helstu málsmetandi fulltrúum sem sækja COP31.
    Hópmynd af helstu málsmetandi fulltrúum sem sækja COP31. Mynd: © UN Climate Change – Kiara Worth

Mengunarvaldar verða að borga

Aðalframkvæmdastjórinn beindi spjótum sínum að hagsmunaaðilum jarðefnaeldsneytis og sakaði þá um að afbaka vísindin og tefja loftslagsaðgerðir.

„Jarðefnaeldsneyti verður að fara sömu leið og risaeðlurnar,“ sagði hann. „Risaeðlurnar höfðu engan þrýstihóp. Jarðefnaeldsneyti hefur hann.“

Hann bar saman þá 95 milljarða dala sem níu stærstu olíufyrirtæki heims öfluðu á einum ársfjórðungi og þær um það bil 600 milljónir dala sem alþjóðlegi sjóðurinn, sem hjálpar viðkvæmum ríkjum að ná sér eftir loftslagstengt tjón og skaða, hefur fengið.

Það jafngilti aðeins 14 klukkustunda hagnaði þessara fyrirtækja, sagði hann, og hvatti ríkisstjórnir til að skattleggja ofsagróða.

„Mengunarvaldar verða að borga,“ sagði hann, og uppskar fyrir það lófaklapp í þingsalnum.

Sjá einnig hér og hér.