Gasasvæðið. Rúmlega hálf milljón manna á Gasasvæðinu býr við hungursneyð. Fólk sveltur, lifir í örbirgð og deyr að nauðsynjalausu, segir í nýrri skýrslu sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að niðurstöður sérstakrar nefndar um fæðuöryggi, IPC, þyrftu ekki að koma á óvart. „Þetta eru hamfarir af mannavöldum, siðferðilegur áfellisdómur og vanræksla sjálfs mannkynsins.”
Mynd: UN News
„Hungursneyð snýst ekki um mat; hér er um að ræða að öllu því sem þarf til að fólk komist lífs af, hefur verið kollvarpað vitandi vits.“
Skyldur Ísraels
Stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa ítrekað hversu brýnt er að koma til skilar tafarlausri og umfangsmikilli mannnúðaraðstoð sökum sívaxandi hungurdauða. Vannæring er landlæg enda fá hundruð þúsunda manna ekki að borða svo dögum skiptir.
„Skyldur Ísraels sem hersetuliðs eru ótvíræðar samkvæmt alþjóðalögum,“ sagði Guterres. „Þar á meðal ber Ísrael skylda til að tryggja næga matvæla- og læknisaðstoð við íbúana.“
Kvarðar IPC
Búast má við, að sögn IPC, að hungursneyðin breiðist út frá Gasa-héraði til Deir Al Balah og Khan Younis héraða á næstu vikum.
Í lok september munu meira en 640.000 manns standa frammi fyrir hörmulegu mataróöryggi – flokkað sem 5. stig á kvarða IPC – um Gasaströndina. 1,14 milljónir manna til viðbótar á svæðinu verða í neyðarástandi (4. stig IPC kvarðans) og 396.000 í kreppu (3. stig IPC kvarðans). Áætlað er að aðstæður í norðurhluta Gasa séu jafn alvarlegar – eða verri – en í Gasaborg.
Skilgreiningar eða kvarðar IPC á ýmsum stigum hungurs eru skýrð í þessu myndbandi:
Búast má við, að sögn IPC, að hungursneyðin breiðist út frá Gasa-héraði til Deir Al Balah og Khan Younis héraða á næstu vikum.
Flokkun hungursneyðar þýðir að ástandið er komið á alvarlegasta stig þegar þremur mikilvæg skilyrði eru til staðar: mikið mataróöryggi, bráð vannæring og dauðsföll tengd hungri.
Nýjasta greiningin staðfestir nú, byggð á rökstuddum sönnunargögnum, að þessi skilyrði hafa verið uppfyllt. Aðgangur að mat á Gasaströndinni er enn mjög takmarkaður. Í júlí tvöfaldaðist fjöldi heimila sem tilkynntu um mjög alvarlegt hungur á svæðinu samanborið við maí og meira en þrefaldaðist í Gasaborg. Meira en einn af hverjum þremur (39 prósent) sagðist hafa verið án matar í daga og fullorðnir sleppa reglulega máltíðum til að fæða börnin sín.
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að það felist hugsanlega stríðsglæpir í því að meina Gasabúum að aðgang að mat.
