
Mannúðaraðstoð. Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra fara fram á 23 milljarða dala fjárveitingar til að koma 87 milljónum nauðstaddra í heiminum til bjargar. Þetta fólk þarf á lífsbjargandi aðstoð að halda vegna styrjalda, loftslagshamfara, jarðskjálfta, farsótta og uppskerubrests.
Þetta er forgangsatriði í Alheimsyfirliti um mannúðarmál, sem birt var mánudaginn 8.desember 2025. Alls er hins vegar farið fram á 33 milljarða dala fjárveitingar til að standa straum af aðstoð við 135 milljónir manna í 50 ríkjum.
„Þetta yfirlit sýnir hvar við þurfum einbeita sameiginlegri orku okkar: líf fyrir líf,” sagði Tom Fletcher yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum.

Milljónir bágstaddra
Nýja yfirlitið kemur út í lok árs sem einkennst hefur af gríðarlegum niðurskurði til mannúðarverkefna. Þá hafa aldrei verið jafn margar mannskæðar árásir á mannúðarstarfsmenn.
Tuttugu og níu verkefni eru tíunduð í yfirlitinu. Umfangsmesta verkefnið er á herteknu svæðunum í Palestínu. Þar þarf 4.1 milljarð Bandaríkjadala til að koma þremur milljónum manna til hjálpar.
2.9 milljarða dala þarf til að koma lífsnauðsynlegri hjálp til 20 milljóna manna í Súdan. Hvergi hafa jafn margir flosnað upp frá heimilum sínum í heiminum. Enn þarf 2 milljarða dala til að hjálpa þeim 7 milljónum Súdana sem flúið hafa land.
Ári eftir lok borgarstríðsins í Sýrlandi þarf 2.8 milljarða dala til að hjálpa 8.6 milljónum manna.

Mannúðaraðstoð: afleiðingar niðurskurðar
Tom Fletcher minnti á að árið 2025 hafi einungis 12 milljarða dala verið aflað. Það eru minnstu fjárveitingar í áratug. Á sama tíma hefur hungursneyð geisað á Gasa og í Súdan. Afleiðingarnar eru þær að 25 milljónum færri var komið til hjálpar en á síðasta ári. Af þessum sökum hefur hungur farið vaxandi og álag á heilbrigðiskerfi aukist.
„Verkefni sem snérust um að vernda konur og stúlkur voru aflögð, hundruð hjálparsamtaka hafa lokað. Og 380 hjálparstarsmenn voru drepnir og hafa aldrei verið fleiri.”
Mannnúðarstarfsmenn í skotlínu
Mannúðarstjórinn sagði að mannúðarstarfsmenn glímdu við tröllaukin verkefni, fjársvelti og sættu þar að auki árásum.
„Aðeins 20% þess sem við þurfum hefur verið fjármagnað. Við keyrum sjúkrabifreið fyrir ykkar hönd í átt til elda sem loga,“ sagði hann. „En nú er einnig ætlast til að við slökkum þá. Við höfum hins vegar ekki nóg vatn í geyminum og þar að auki er skotið á okkur.“
Stuðningur aðildarríkja
Mannúðarstarfsmenn leita nú til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og biðla til þeirra um fjármagn. Þetta mun gerast næstu 87 dag. „Einn dagur fyrir hverja milljón mannslífa sem við munum reyna að bjarga,” sagði Fletcher.
Ríkin verða einnig beðin um að auka vernd mannúðarstarfsmenna. „Ekki með yfirlýsingum um þungar áhyggjur, heldur með því að draga þá til ábyrgðar sem drepa okkur og þá sem vopna þá sem drepa okkur,”bætti hann við.
Sjá yfirlitið hér.
