Endurnýjanleg orka. Meiri orka er nú framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum í heiminum en með kolum samkvæmt nýrri úttekt. António Guterres, aðalfrrmkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að „framtíð hreinnar orku sé ekki lengur fjarlægt loforð – hún er komin.“
Notkun sólar- og vindorku jókst hraðar en spurn eftir rafmagni á heimsvísu á fyrri helmingi þessa árs, sem leiddi til nokkurrar minnkunnar kola og gasnotkunar samanborið við sama tímabil árið 2024. Það er Ember, alþjóðleg hugveita, sem vinnur að því að flýta fyrir umskiptum yfir í hreina orku, sem vann úttektina.
Þetta eru „mikilvæg tímamót“ að mati Małgorzata Wiatros-Motyka, yfirmanns raforkugreiningar hjá Ember.
„Sólar- og vindorka eru nú að vaxa nógu hratt til að mæta vaxandi eftirspurn heimsins eftir rafmagni. Þetta markar upphaf breytinga þar sem hrein orka heldur í við vöxt eftirspurnar.“
Árangur sólarorkuframleiðslu
Í annari nýrri skýrslu Alþjóðaorkustofnunarinnar (IEA) er sýnt fram á hvernig framleiðsla orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum heldur áfram að aukast. Búist er við að hún tvöfaldist fyrir árið 2030.
Spáð er að alþjóðleg framleiðsla á endurnýjanlegri orku muni aukast um 4.600 gígavött (GW). „Þetta jafngildir því að bæta við heildarorkuframleiðslugetu Kína, Evrópusambandsins og Japans samanlagt,“ sagði í skýrslu stofnunarinnar.
Vöxturinn er knúinn áfram af hraðri útbreiðslu sólarorku (PV) tækni, sem breytir sólarljósi í orku. Hún mun standa fyrir um 80 prósent af aukningunni, þar á eftir kemur vindorka, vatnsorka, líforka og jarðvarmaorka.
Í kjölfar frétta af þessum tveimur skýrslum tísti António Guterres, aðalfarmkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, að „framtíð hreinnar orku sé ekki lengur fjarlægt loforð – hún er komin.“
Hann hvatti alþjóðasamfélagið til að „grípa þetta sögulega tækifæri og efla hnattræna breytingu í átt að betri framtíð fyrir alla.“
Skýrslurnar endurspegla niðurstöður skýrslu aðalfarmkvæmdastjórans, „Augnablik tækifærisins“, sem gefin var út í júlí.
Þær endurspegla einnig skilaboð leiðtoga heimsins sem sóttu loftslagsráðstefnu hans sem haldin var í síðasta mánuði í viku háttsettra manna í aðdraganda COP30 ráðstefnunnar í Brasilíu í nóvember.
Hins vegar hefur framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ítrekað lagt áherslu á að þótt árangur hafi náðst, séu orkuskiptin hvorki nægilega skjót né sanngjörn.
