COP30. Loftslagsbreytingar. Hátt í 100 ríki hafa skuldbundið sig nú þegar til að ljúka loftslagsmarkmiðum fyrir COP30 í Brasilíu sem hefst í nóvember.
COP30 er Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, sú þrítugasta í röðinni, þar sem aðilar samnings um loftslagsmál koma saman í borginni Belém.
Tilkynningar um þetta voru gefnar á Loftslags-leiðtogafundi sem António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og Lula forseti Brasilíu höfðu boðað til samhliða 80.allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
„Vísindin krefjast aðgerða. Lögin mælast til þess. Hagfræðin krest þess. Og fólkið hvetur til þess,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn í opnunarræðu sinni.
Loftslagsbreytingar: Nýjar skuldbindingar
Um hundrað aðilar að Parísarsáttmálanum um loftslagsbreytingar hafa annað hvort afhent nú þegar ný landsmarkmið (NDCs) með nýjum loftslagsmarkmiðum eða heitið að gera slíkt. Þessir aðilar standa fyrir tveimur þriðju af losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Með þessu hafa þessir aðilar sýnt í verki stuðning þeirra við að hraða loftslagsaðgerðum.
Í fyrsta skipti hafa nokkur af stærstu hagkerfum heims, þar á meðal Kína og Nígería, tilkynnt um markmið til að minnka útblástur þvert á hagerfið. Kína ber ábyrgð á mestri losun allra ríkja í heiminum.
Aðrar þjóðir hafa greint í einstökum atriðum frá markmiðum um aukningu endurnýjanlegrar orku, áætlunum um að draga úr metan-losun, herferðum til að vernda skóga og aðgerðum til að draga smám saman úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Leiðtogarnir hafa lagt áherslu á að með því að hraða orku-umskiptunum, séu sköpuð störf, hagvöxtur leystur úr læðingi og orkuöryggi tryggt. Á sama tíma hafa þróunarríki hvatt til að forgangsraða aðlögun, þolgæði og tapi og tjóni innan landsáætlanna. Þeir hafa bent á þá brýnu þörf sem er á að auka fjármögnun til að ná núverandi takmörkunum og víkka þau út.
Nýtt upphafi í Belém
Þau fyrirheit sem gefin hafa verið á leiðtogafundinum lofa góðu, en leiðtogarnir viðurkendu að ginnungagap væri á milli þess sem þarf til að halda hlýnun jarðar innan 1.5 C gáðu og þess fjármagns og aðlögunar sem er þörf.
Aðalframkvæmdastjórinn minnti á að nú þegar aðeins nokkrar vikur eru til upphafs COP30 bæri öllum ríkjum að ljúka landsáætlunum sínum án tafar. „COP30 í Brasíl verður að ljúka með sannfærandi viðbrögðum á heimsvísu til þess að við höldum okkur á áætlun.“
