A-Ö Efnisyfirlit

Minnsta aukning lífsgæða í heiminum í 35 ár

Haldið á hnattlíkani. Mynd: Porapak Apichodilok- Creative Commons Zero, Public Domain Dedication

Mannþróun. Lífsgæðaskýrsla.

Hægst hefur á framþróun í heiminum að því er fram kemur í nýrri, árlegri Lífsgæðaskýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP).  Samkvæmt skýrslunni hafa orðið minnstu árlegu framfarir frá 1990 ef frá eru talin kreppuárin 2020-2021.

Í Lífsgæðaskýrslunni 2025 (Human Development Report) er farið í saumana á vísitölum um þróun samfélaga á sviðum heilbrigðis og menntunar, auk tekjuþróunar. Yfirlit yfir árið 2024 sýnir fram á að hægt hefur á framþróun á helstu sviðum í öllum heimshlutum.

Menntun vegur þungt í lífsgæðum.
Menntun vegur þungt í lífsgæðum. Mynd: Aaron Burden/Unsplash

2030 markmið í hættu

„Áratugum saman hefur þróunin verið í þá átt að mjög mikilli mannþróun verði náð um 2030. Nú þegar hægist á framþróuninni er ljóst að þessu er stefnt í voða,” segir Achim Steiner forstjóri UNDP.

„Ef þessi slaka niðurstaða fyrir árið 2024 er til marks um það sem koma skal, er ljóst að markmiðunum,sem átti að ná 2030, mun seinka um áratugi. Slíkt hefur í för með sér minna öryggi og meiri sundrungu í heiminum, og að við verðum berskjaldaðri fyrir efnahagslegum og vistfræðilegum áföllum.“

Ójöfnuður eykst

Jafnframt er sýnt fram á í skýrslunni að ójöfnuður á milli ríkra og fátækra ríkja fer vaxandi. Fjórða árið í röð heldur ójöfnuður áfram að aukast á milli þeirra ríkja sem njóta mestrar mannþróunar og minnstrar. Þetta er þvert á þá almennu sögulega þróun, að bilið á milli ríkra og fátækra þjóða fari minnkandi.

Tiltölulega fáir óttast atvinnumissi af völdum gervigreindar. Mynd: LYCS Architecture - Unsplash
Tiltölulega fáir óttast atvinnumissi af völdum gervigreindar. Mynd: LYCS Architecture – Unsplash

Þær áskoranir sem við blasa fyrir þær þjóðir sem minnstrar mannþróunar njóta eru mjög alvarlegar. Má nefna aukna spennu í heimsviðskipum, harðnandi skuldakreppu og iðnvæðingu án atvinnusköpunar.

Gervigreind

Í skýrslunni er einnig að finna skoðanakönnun um afstöðu heimsbúa til þeirra breytinga sem felast í útbreiðslu gervigreindar.

Helmingur aðspurðra í heiminum telur að störf þeirra geti orðið sjálfvirk. Sex af hverjum tíu telja að gervigreind geti haft jákvæð áhrif á atvinnu þeirra. Hún muni jafnvel skapa atvinnutækifæri, sem ekki séu til í dag. Aðeins 13% óttast að gervigreind geti leitt til fækkunar starfa.