A-Ö Efnisyfirlit

Nikaragúa segir sig úr UNESCO eftir að La Prensa er verðlaunað

Ofsóknum gegn fjölmiðlum í Nikaragúa mótmælt
Ofsóknum gegn fjölmiðlum í Nikaragúa mótmælt. Mynd: Jorge Mejía peralta / Creative Commons Attribution 2.0

Nikaragúa hefur tilkynnti úrsögn  úr UNESCO eftir að stjórnarandstöðublaðið La Prensa fékk verðlaun Alþjóðlegs dags fjölmiðlafrelsis.

La Prensa hefur sætt áralöngum þrýstingi og kúgun af hálfu yfirvalda. Forystumenn blaðsins hafa verið fangelsaðir eða reknir úr landi. Árið 2021 var lagt hald á eignir blaðsins. Samt sem áður hefur La Prensa haldið áfram fréttaflutningi.

La Prensa hefur komið út í rúma öld
La Prensa hefur komið út í tæpa öld. Mynd: WIkimedia Commons

„La Prensa hefur af miklu hugrekki haldið áfram að segja Nikaragúabúum sannar fréttir. Eins og aðrar stofnanir borgaralegs samfélags hefur La Prensa mátt sæta mikilli kúgun. Þótt blaðið sé landflótta hefur það haldið merki frelsis fjölmiðla á lofti,” segir Yasuomi Sawa formaður óháðrar alþjóðlegrar dómnefndar fjölmiðlafrelsisverðlauna UNESCO, sem kennd eru við Guillermo Cano.

Myndatökumaður að störfum í Nikaragúa.
Myndatökumaður að störfum í Nikaragúa. Mynd: Muhammad Taha Ibrahim/Unsplash

And-föðurlandslegar skoðanir

Yfirvöld í Nikaragúa hafa réttlætt úrsögnina úr UNESCO með því að verið sé að verðlauna „fjandsamlega tjáningu sviksamlegra, and-föðurlandslegra skoðana La Prensa”. Blaðið sé málsvari „hernaðarlegar og pólitískrar íhlutunar Bandaríkjanna í Nikaragúa.“

„Ég harma þessa ákvörðun,“ sagði Audrey Azoulay forstjóri UNESCO. „Hún felur í sér að Nikaragúabúar munu ekki njóta ávaxta samvinnu, einkum á sviði menntunar og menningar. UNESCO starfar innan umboðs síns sem felur í sér vörn tjáningarfrelsis og fjölmiðlafrelsis í heiminum.“

Alþjóðlegur dagur fjölmiðlafrelsi er haldinn 3.maí ár hvert.
Alþjóðlegur dagur fjölmiðlafrelsi er haldinn 3.maí ár hvert.

La Prensa starfar erlendis

La Prensa var stofnað árið 1926. 2021 var lagt hald á eignir blaðsins og forystumenn handteknir og reknir úr landi. Síðan hefur La Prensa haldið áfram að upplýsa Nikaragúabúa á netinu. Flestir starfsmenn eru í útlegð og starfa í í Costa Rica, Spáni, Mexíkó, Þýskalandi og Bandaríkjunum.

Með UNESCO/Gullermo Cano Fjölmiðlafrelsisverðlaununum vill UNESCO styðja við bakið á blaðamönnum. Þau voru fyrst veitt 1997 og heita eftir kólombíska blaðamanninum Guillermo Cano Isaza, sem ráðinn var af dögum árið 1986. Verðlaunin eru veitt framúrskarandi blaðamönnum, sem starfa við hættulegar aðstæður.

Verðlaunin í ár verða afhent  í Brussel 7.maí.

Sjá einnig hér.