Alþjóðlegur dagur fjölmiðlafrelsis
„Eftir að ég missti fótinn í stríðinu hélt ég áfram fréttaljósmyndun, ekki aðeins starfsins vegna heldur einnig vegna þess að ég hef elskað ljósmyndun frá barnæsku,“ segir Palestínumaðurinn Sami Shehada.
Shahada særðist alvarlega í Nuseirat á Gasasvæðinu í apríl 2024 með þeim afleiðingum að hann missti annan fótinn. Hann lét ekki deigan síga og hélt áfram að ljósmynda þann he-harmleik sem á sér stað á Gasa.
„Það er mér ómögulegt að segja skilið við fréttaljósmyndun, jafnvel þótt svo mörg ljón séu á veginum,“ segir hann.
Alþjóðlegur dagur fjölmiðlafrelsis er 3.maí og af því tilefni ræddi fréttavefur Sameinuðu þjóðanna við palestínska fréttamenn. Alþjóðlegum degi fjölmiðlafrelsins (World Press Freedom Day) 3.maí er ætlað að beina kastljósinu að hlutverki fjölmiðla við að vekja athygli á ábyrgð, réttlæti, jafnrétti og mannréttindum
Frá því stríðið blossaði upp eftir hryðjuverkaárás Hama á Ísrael hefur fjöldi blaðamanna verið drepinn eða særst á Gasasvæðinu á sama tíma og neyð almennings hefur aukist.
Vitnisburður
Sami Shahada stendur á einum fæti og styður sig við hækju. Hann mundar myndavélina klæddur í blátt vesti merktu “Press.” Hann vinnur með starfsfélögum innanum rústirnar.
„ Ég bar vitni um alla þá glæpi sem voru framdir og loks var ég vitni að glæp sem framinn var gagnvart sjálfum mér,” sagði hann í viðtali við UN News.
„Ég var blaðamaður á vettvangi með myndavél á bersvæði. Ég var í vesti og með hjálm með áletruninni “press” en samt var skotið beint á mig.”
Atburðurinn markaði þáttaskil í lífi hans. „Ég hafði aldrei þurft á hjálp að halda, en nú er ég hjálpar þurfi,“ sagði hann og bætti við: „Ég hef þá ákveðni og þrautseigju, sem til þarf til að yfirvinna þessar nýju aðstæður. Svona verðum við blaðamenn að vinna á Gasa.“
Unnið á götum úti
Mohammed Abu Namous er í hópi blaðamanna á Gasa.
„Á meðan Alþjóðlegum degi fjölmiðlafrelsis er minnst í heiminum, minnumst við palestínsku blaðamennirnir vinnustaðanna sem lagðir hafa verið í rúst í stríðinu,“ sagði hann þar sem hann var að störfum innan um eyðilegginguna á Gasa.
„Við þurfum bara rafmagn og netaðgang til að sinna starfi okkar, en margir okkar búa ekki svo vel. Við nýtum okkur verslanir sem hafa net. Gatan er okkar nýja skrifstofa.“
Hann er sannfærður um að palestínskir blaðamenn séu skotmörk Ísraelsmanna Gasa. Fjölmiðla beri að vernda „hvort sem þeir eru að störfum í Palestínu eða annars staðar í heiminum.“
Alþjóðlegur dagur fjölmiðlafrelsis er alþjóðlegur dagur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í krafti samþyktar Allsherjarþingisins í desember 1993. Dagurinn er 3.maí en þann dag var svokölluð Windhoek yfirlýsing samþykkt.
