Heimsfaraldrar. Ný skýrsla eftir leiðandi hagfræðinga og sérfræðinga í lýðheilsu sýnir að ójöfnuður gerir heiminn berskjaldaðri fyrir heimsfaröldrum.
Skýrslan ber nafnið Að brjóta hringrás ójöfnuðar-faraldursins: að byggja upp raunverulegt heilbrigðisöryggi á hnattrænum tímum (Breaking the inequality-pandemic cycle: building true health security in a global age). Hún byggir á tveggja ára rannsóknum og samráði um allan heim. Hún sýnir að mikill ójöfnuður tengist því að faraldrar verði að heimsfaröldrum og að ójöfnuður grefur undan viðbrögðum á lands-og heimsvísu.
Vítahringur ójöfnuðar og heimsfaraldra
Af þesum sökum valda heimsfaraldrar meiri röskun, eru banvænni og vara lengur. Skýrslan sýnir einnig að heimsfaraldrar auka ójöfnuð og kynda undir hringrás ekki aðeins fyrir COVID-19, heldur einnig fyrir alnæmi, ebólu, inflúensu, Mpox og fleira.
Gögn sem sérfræðingarnir hafa safnað sýna einnig að viðbrögð við heimsfaraldri, sem taka tillit til ójöfnuðar, ásamt aðgerðum gegn ójöfnuði sem gripið er til áður en heimsfaraldur skall á, geta verndað heiminn gegn næstu hnattrænu sjúkdómskreppu á skilvirkari hátt en núverandi aðgerðir.
G20 funda
Þessar niðurstöður eru kynntar á sama tíma og heilbrigðisráðherrar G20 ríkjahópsins koma saman til fundar. Jafnframt berast þessa dagana fréttir um vaxandi útbreiðslu fuglaflensu og Mpox á alþjóðavettvangi. Enn má nerfna að lyfjaeftirlitsaðilar hafa samþykkt byltingarkennd lyf gegn HIV.
„Þessi skýrsla sýnir hvers vegna leiðtogar þurfa að takast á við ójöfnuðinn sem knýr heimsfaraldra og hún sýnir frá á hvernig þeir geta gert það,“ segir Winnie Byanyima, framkvæmdastjóri UNAIDS. „Að draga úr ójöfnuði innan og milli landa mun gera öllum kleift að lifa betra, sanngjarnara og öruggara lífi.“

