Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Nýr forseti setti áttugasta Allherjarþing Sameinuðu þjóðanna með þeim orðum að verkefni samtakanna nú væri að aðlaga sig að kröfum 21.aldarinnar.
Annalena Baerbock fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands var í sumar kosin forseti Allsherjarþingsins. 80.Allsherjarþingið hófst á þriðjudag 9.september.

Alvarlegar brýningar í þingbyrjun
Þótt nýhafið Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sé haldið á 80.afmælisárinu dvaldi Baerbock ekki við fortíðina. Hún minnti á þann tröllaukna vanda sem væri við að glíma. Hún nefndi brottvísun afganskra stúlkna úr skólum, börn svelt á Gasasvæðinu, kynferðislegt ofbeldi í Darfur og hækkandi yfirborð sjávar sem ógnar Kyrrahafseyjum.
Að halda grundvallarsjónarmið í heiðri
Baerbock er aðeins fimmta kona sem kjörin er til forystu á Allsherjarþinginu í 80 ára sögu þess. Þar að auki er hún einn yngsti forseti þingins, sem um getur.
Í ræðu hennar sagði hún að Sameinuðu þjóðirnar væru „einu samtök sem gætu boðið öllum ríkjum heims til fundar.” Hún benti á að „jafnvel stærstu hagkerfi heims geta ekki leyst öll mál upp á eigin spýtur.“ Hún hvatti aðildarríkin til að hafa grundvallarsjónarmið stofnskrár samtakanna í heiðri. Aðlaga þyrfti stofnunina að kröfum komandi áratuga. Einblína bæri á innihald en ekki málsmeðferð. „Við þurfum að sýna heiminum hvers vegna þessi samtök skipta enn máli.”
Annalena Baerbock sveir embættiseið sem forseti 80.þingsins. Mynd: UN Photo/Manuel Elías
Mannúðarhlutverk SÞ
Hún lagði áherslu á þýðingarmikið hlutverk Sameinuðu þjóðanna í mannúðaraðstoð. Benti hún á störf stofnana á borð við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Matvælaáætlunina (WFP), Flóttamannahjálpina (UNHCR), Alþjóða heilbrigðisstofnunina (WHO) og Fólksflutningstofnunina (IOM). Einnig minnti hún á að stofnanir á borð við Alþjóðaflugmálastofnunina snerti daglegt líf margra með því að tryggja flugöryggi í heiminum.
Enn ítrekaði Baerbock þörfina á að staðið væri við skuldbindingar eins og til dæmis Sáttmála framtíðarinnar sem samþykkur var á síðasta ári og Umbótaáætlunina sem kennd er við SÞ80. Hún hét því að verða óhlutdræg og leitast við að þjóna öllum 193 aðildarríkjum til jafns.
Hún minnti á komandi kosningu aðalframkvæmdastjóra og benti á að engin kona hefði enn gegnt því starfi.
Fyrirheit stofnskrárinnar
Í lok ræðu sinni eggjaði Baerbock fulltrúa á Allsherjarþinginu til að „leysa deilumál sín friðasamlega, í sameiningu.“ Jafnramt að „beita sér af hugrekki og með einingu að vopni á tímum sundrungar.“ Hún sagði að verkefnið framundan væri að „standa við fyrirheit stofnskrárinnar „í dag, á morgun og næstu 80 árin.“ Sýna þyrfti fram á að Sameinuðu þjóðirnar væru sönnun þess að „við erum reyndar betri saman.“
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hýsir almennar umræður oddvita aðildarríkjanna 23.-29. september.
