Öfgakennt veðurfar verður daglegt brauð

0
41
Óveðrið sem kennt er við Hans olli vatnavöxtum í suðaustur-Noregi. Myndin er fá Akerselva í Osló. Mynd: © Unsplash/Phil Aicken.
Óveðrið sem kennt er við Hans olli vatnavöxtum í suðaustur-Noregi. Myndin er fá Akerselva í Osló. Mynd: © Unsplash/Phil Aicken.

Loftslagsbreytingar. Sumarsins 2023 verður minnst víða um heim fyrir ýmis veður-heimsmet. Júlí-mánuður var þannig sá heitasti á jörðini frá því mælingar hófust. Ágúst hefur einnig einkennst af ýmiss konar veður-fyrirbærum, sem valdið hafa skakkaföllum. Loftslagsbreytingar hafa sannarlega látið til sín taka.

Loftslagssérfræðingar á borð við Alvaro Silva hjá Alþjóða veðurfræðistofnuninni (WMO) telja að öfgakennt veðurfar muni verða næsta hversdagslegt héðan í frá.

Sífellt fleiri gögn staðfesta að tíðni og styrleiki hitabylgja, úrhelli og aðrar öfgar fari vaxandi vegna loftslagsbreytinga sökum losunar gróðurhúsaloftegunda af mannavöldum.

Flóð verða með jöfnu millibili í Chittagong, Bangladesh. Mynd: © WMO/Muhammad Amdad Hossain.
Flóð í Chittagong, Bangladesh. Mynd: © WMO/Muhammad Amdad Hossain.

Öfgafullar aðstæður um víða veröld

Fyrstu þrjár vikurnar í ágúst hafa mörg Evrópuríki glímt við töluverðar eða umtalsverðar hitabylgjur. Í suður-Frakklandi hefur hitinn verið í kringum 40 °C en td.í Valencia á Spáni hefur hann komist í tæp 47 °C. Enn heitar hefur verið í Marokkó og Tyrklandi þar sem hitinn hefur farið yfir 50°C í fyrsta skipti. Víða hafa skógar- og jarðeldar brotist út í Portúgal og á Spáni, þar á meðal á Kanarí-eyjum. Japan hefur einnig þurft að líða fyrir hitabylgjur, en þeim hafa fylgt úrheillisrigningar og flóð í kjölfar fellibylja.

Skógareldar hafa herjað á marga sumardvalarstaði á grísku eyjunum sem og gríska meginlandinu. Mynd: UN News/Katy Dartford.
Skógareldar hafa herjað á marga sumardvalarstaði á grísku eyjunum sem og gríska meginlandinu. Mynd: UN News/Katy Dartford.

Norður-Ameríka er engin undantekniung. Eldar hafa kviknað, sem aldrei fyrr í Kanada og hefur þurft að glíma við þúsund gróður- og skógarelda í einu, með tilheyrandi brottflutningi fólks. Hitabylgjur herja á sléttur Bandaríkjanna og er hitinn kominn í 40°C í mörgum héruðum og er búist við að mörg hitamet verði slegin.

Einnig Norðurlönd

Norðurlönd hafa einnig orðið fyrir barðinu á öfgakenndu verðurfari í sumar. Stormurinn Hans reið húsum í suðurhluta Noregs og suðausturhluta Svíþjóðar frá 7.-10.ágúst og olli töluverðum búsifjum.

Af öllum náttúruhamförum eru flóð skæðust ef tekið er tillit til hversu marga þau snerta og hvaða tjóni þau valda. Mynd: © Unsplash/Phillip Flores
Af öllum náttúruhamförum eru flóð skæðust ef tekið er tillit til hversu marga þau snerta og hvaða tjóni þau valda. Mynd: © Unsplash/Phillip Flores

Mikil úrkoma varð til þess að ár flæddu yfir bakka sína í Noregi. Þúsund manns urðu að flýja heimili sín í suðausturhluta Noregs vegna flóða og skriðufalla. Innviðir urðu einnig fyrir skemmdum. Járnbrautabrú í Ringebu hrundi og hluti af Braskereidfoss-virkjuninni í Glama-ánni.

Svipaða sögu er að segja frá Svíþjóð. Lestarsamgöngur röskuðust og skemmdir urðu á Gautaborgar-höfn í vatnsveðri.

vestur-Bengal á Indlandi 2021. © Unsplash/Dibakar Roy.
vestur-Bengal á Indlandi 2021. © Unsplash/Dibakar Roy.

Loftlagsbreytingar eru ekki fjarlæg ógn lengur. Sumarið 2023 er áminning um að loftslagbreytingar tilheyra ekki fjarlægri framtíð; þær eru hér og nú.