Öryggisráðið vill endurkjósa Guterres

0
610
Alþjóðlegur dagur kvenna
António Guterres

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að leggja til að  António Guterres skuli kosinn aðalframkvæmdastjóri samtakanna öðru sinni.

Það er formlega Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem kýs til embættisins að fengnum ráðleggingum Öryggisráðsins og er Guterres einn í kjöri.

„Það hafa verið einstök forréttindi að vera í þjónusta aðildarríkjanna og veita því stórkostlega starfsliði, konum og körlum, sem þau hafa á að skipa undanfarin fjögur og hálft ár á meðan við höfum glímt við svo margslungnar áskoranir,“ sagði Guterres þegar samþykkt Öryggisráðsins lá fyrir.

Flestir aðalframkvæmdastjórar hafa gegnt embætti í tvö kjörtímabil. Bandaríkin beittu þó neitunarvaldi til að hindra að Boutros Ghail gegndi áfram embætti 1996.

António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna áður en hann var kjörinn aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til fimm ára 1.janúar 2017. Hann er sjötíu og tveggja ára gamall, fæddur 1949.