A-Ö Efnisyfirlit

Rannsókn SÞ: Rökstuddur grunur um þjóðarmorð í Súdan

Ásetningur um þjóðarmorð „eina skynsamlega ályktunin“
Ásetningur um þjóðarmorð „eina skynsamlega ályktunin“ Mynd: UNAMID/Mohamad Almahady

Svokallaðar Hraðsveitir (RSF) frömdu morð á grundvelli þjóðernis, víðtækt kynferðisofbeldi og mannshvörf þegar þær tóku yfir El Fasher í Darfur-héraði í Súdan í lok október. Sérstök rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna segir að ofbeldismerkin beri „öll merki þjóðarmorðs“ gegn Zaghawa- og Fur-samfélögunum. Óttast er að hætta sé á frekari grimmdarverkum.

Í skýrslu sem gefin var út fimmtudaginn 19.febrúar sagði óháða alþjóðlega rannsóknarnefndin fyrir Súdan að sönnunargögn staðfesti að að minnsta kosti þrjár undirliggjandi þjóðarmorðsaðgerðir hafi verið framdar: „morð á meðlimum verndaðs þjóðernishóps; að valda alvarlegum líkamlegum og andlegum skaða; og að skapa af ásettu ráði lífsskilyrði sem miða að því að tortíma hópnum líkamlega, að öllu leyti eða að hluta.“

Börn í hópi fólks sem flúið hefur El Fasher.
Börn í hópi fólks sem flúið hefur El Fasher. Mynd: © UNICEF/Rogier van Zeventer

„Umfang, samhæfing og opinber stuðningur við aðgerðina af hálfu æðstu leiðtoga RSF sýna að glæpirnir sem framdir voru í og við El Fasher voru ekki tilviljanakenndar öfgar stríðsins,“ sagði Mohamed Chande Othman, formaður nefndarinnar.

„Þeir voru hluti af skipulagðri aðgerð sem ber öll einkenni þjóðarmorðs.“

500 daga umsátur

Niðurstöðurnar beinast að atburðum í og við El Fasher, höfuðborg Norður-Darfur, við yfirtöku RSF í lok október 2025, eftir það sem nefndin lýsti sem 18 mánaða umsátri sem smám saman útilokaði almenna borgara frá mat, vatni, lækningavörum og mannúðaraðstoð.

Í skýrslunni sagði að umsátrið hafi „kerfisbundið veikt hópinn, sem spjót beindust að, með hungri, skorti, áföllum og innilokun,“ sem gerði það að verkum að margir gátu ekki flúið þegar árásin hófst.

Átökin í Súdan brutust út 15. apríl 2023, þegar bardagar hófust milli súdanska hersins (SAF) og fyrrverandi bandamanna þeirra – hersveita RSF. Stríðið hefur síðan breiðst út um stóra hluta landsins, þar sem almennir borgarar hafa ítrekað orðið að súpa seyðið af borgarastyrjöld, breytilegum víglínum og hruni grunnþjónustu.

Rannsóknarnefndin sagði að framferðið í El Fasher fæli í sér stigmögnun árása á önnur samfélög sem ekki eru arabísk annars staðar í Súdan og væri enn mannskæðari.

Ásetningur um þjóðarmorð „eina skynsamlega ályktunin“

Ásetningur um þjóðarmorð, sagði nefndin, væri „eina skynsamlega ályktunin“ af „kerfisbundnu mynstri RSF af morðum á grundvelli þjóðernis, kynferðisofbeldi, eyðileggingu og opinberum yfirlýsingum sem kalla beinlínis á útrýmingu samfélaga sem ekki eru arabísk.“

Eftirlifendur vitnuðu í RSF-liða sem sögðu: „Er einhver Zaghawa á meðal ykkar? Ef við finnum Zaghawa, munum við drepa þá alla“; og „Við viljum útrýma öllu svörtu frá Darfur.“

Hungur, synjun um aðstoð, fjöldamorð, nauðganir, pyntingar og mannshvörf … skilur aðeins eftir eina skynsamlega ályktun – þetta eru einkenni þjóðarmorðs

„Sönnunargögnin sem við söfnuðum – þar á meðal langvarandi umsátur, hungur og synjun um mannúðaraðstoð, fylgt eftir með fjöldamorðum, nauðgunum, pyntingum og mannshvörfum, kerfisbundinni niðurlægingu og yfirlýsingum gerendanna sjálfra – skilja aðeins eftir eina skynsamlega ályktun,“ sagði Mona Rishmawi, nefndarmaður.

„RSF-sveitirnar starfræktu með ásetningi um að tortíma, að öllu leyti eða að hluta, Zaghawa- og Fur-samfélögunum í El Fasher. Þetta eru einkenni þjóðarmorðs, bætti hún við.

Yfirlitsmynd af Darfur-héraði.
Yfirlitsmynd af Darfur-héraði. Mynd: UNAMID/Albert González Farran

„Einkenni þjóðarmorðs í El Fasher“

Lykilatriði sem rannsóknarnefndin nefndi:

  • 18 mánaða umsátur sem „skapaði af ásettu ráði lífsskilyrði“ með skorti á mat, vatni, læknishjálp og mannúðaraðstoð.
  • Mynstur árása á grundvelli auðkenna sem tengist þjóðerni, kyni og meintri stjórnmálaskoðun.
  • Skráðar ásakanir um fjöldamorð, víðtækar nauðganir og annað kynferðisofbeldi, handahófskenndar handtökur, pyntingar og grimmilega meðferð, fjárkúgun og mannshvörf.
  • Tilkynnt orðræða gerenda sem kallar beinlínis á útrýmingu samfélaga sem ekki eru arabísk, nefnd sem sönnun um ásetning.
  • Viðvörun um að ef ekki verður gripið til forvarna og ábyrgðar verði hættan á frekari þjóðarmorðsaðgerðum áfram „alvarleg og viðvarandi“.

Lesið meira um rannsóknarnefndina hér.