Átakanlegar frásagnir af kynferðisofbeldi og aftökum í Norður-Darfur héraði í Súdan hafa verið birtar í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Í skýrslunni sem mannréttindaskrifstofan (OHCHR) tók saman eru RSF-vígasveitirnar sakaðar um voðaverk þegar borgin El-Fasher var tekin herskildi í lok október.
Þá er skýrt frá því að óbreyttir borgarar hafi mátt þola pyntingar og frelsissviptingu í þriggja daga árás RSF á Zamzam-búðirnar í nágrenni El Fasher í apríl á þessu ári.
Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að meir en þúsund manns hafi verið drepnir í árásinni á Zamzam einni saman. Þar af voru 319 teknir af lífi án dóms og laga á heimilum sínum, á aðalmarkaðinum, í skólum, heilbrigðisstofnunum og moskum.
„Slík vísvitandi dráp kunna að teljast stríðsglæpir eða morð,” sagði Türk. „Heimurinn má ekki líta framhjá þessu og láta slík voðaverk afskiptalaus.”

Flóttamannabúðir skelfingu lostins fólks
Hálf milljón manna sem flúið hafði stríðsátök voru í Zamzam búðunum þegar RSF-vígasveitirnar gerðu árás. Samkvæmt skýrslunni stóð áhlaupið yfir frá 11.-13.apríl.
„Ekki færri en 103 sættu viðurstyggilegu kynferðislegu ofbeldi, þar á meðal nauðgun, hópnauðgun og kynferðislegri þrælkun,“ sagði Türk. „Þar á meðal voru 75 konur, 26 stúlkur og þrír drengir. Flest tilheyrðu þau Zaghawa ættbálkinum. Kynferðislegu ofbeldi virðist hafa verið beitt vitandi vits til að valda skelfingu.”
Óháðrar rannsóknar er þörf
Efni skýrslunnar byggir á athugunum mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Þar á meðal vettvangsferðum til austurhluta Tsjad í júlí á þessu ári. Rætt var við 155 fórnarlömb og vitni, þar á meðal 114 konur, 3 stúlkur og 6 drengi, sem höfðu flúið Zamzamb búðirnar eftir árás RSF.
Türk hefur hvatt til „óvilhallrar, rækilegrar og skilvirkrar rannsóknar á árásinni” á Zamsam-búðirnar.
Hann segir að draga verði þá til ábyrgðar sem gerst hafi sekir um alvarleg brot á alþjóðalögum.
Alvarlegasta mannúðarkreppan
Átökin í Súdan má rekja til langvarandi pólitískrar og félagslegrar spennu. Valdabarátta á milli stjórnarhers Súdans og vígasveitanna RSF á vegum yfirvalda, leiddi til allsherjarátaka í apríl 2023. RSF eru arftakar Janjaweed-sveitanna, sem stjórnvöld í Súdan beittu fyrir sig í átökum í Darfur, þar sem þær hafa verið sakaðar um glæpi gegn mannkyninu. Átökin hafa verið olía á elda spennu á milli einstakra þjóðarbrota og héraða innan landsins.

Súdan er efst á válista yfir þau ríki þar sem búast má alvarlegum mannúðarkreppum á næsta ári. 9.3 milljónir manna eru á vergangi í Súdan að sögn IOM, Fólksflutningastofnunar Sameinuðu þjóðanna, þar af helmingur börn. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) varar einnig við því að 70 heilbrigðisstarfsmenn og 5 þúsund óbreyttir borgarar hafi verið fangelsaðir í Nuyala höfuðstað Suður Darfur-héraðs.
Sjá nánar um bakgrunn átakanna hér.


