A-Ö Efnisyfirlit

Ríkiseinkasala stuðlar að minni áfengisneyslu

Þriðjung árlegra dauðsfalla innan Evrópu má rekja til áfengisneyslu.
Þriðjung árlegra dauðsfalla innan Evrópu má rekja til áfengisneyslu. Mynd: WHO/Uka Borregaard

Áfengi. Ríkiseinkasala. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin.

Ríkiseinkasölur á áfengi á flestum Norðurlandanna hafa stuðlað að tiltölulega lítilli áfengisneyslu og minni skaða af völdum að því er fram kemur í nýrri skýrslu WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar.

Ríkseinkasölur eru í Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, auk Færeyja. Áfengisneysla innan Evrópusambandsins hefur verið nokkuð stöðug í rúman áratug. Þetta er sá heimshluti þar sem mest er drukkið af áfengi. Evrópusambandið hefur ekki náð þeim markmiðum sem sett hafa verið á heims- eða heimshluta vísu um að draga úr áfengisneyslu.

Áfengi í ríkiseinkasölu.
Áfengi í ríkiseinkasölu. Mynd: Eivind Sætre/norden.org

Við þær aðstæður er eðlilegt að lýðheilsugeirinn líti í kringum sig eftir góðum fyrirmyndum, það er að segja hvar áfengisneysla hefur minnkað eða hafi verið haldið á lágu stigi.

Í skýrslu Evrópuskrifstofu WHO (WHO/Europe) um norrænu einkasölurnar segir að önnur Evrópusambandsríki geti lært af reynslu Norðurlandanna.

Fyrirmynd um skaðaminnkun

Ólíkt hagnaðardrifinni áfengissölu er norræna aðferðin (fyrir utan Danmörku og Grænland) sú að draga úr aðgengi að áfengi. Jafnframt er matvöruverslunum bannað að selja sterkt áfengi. Markmið ÁTVR á Íslandi og systurfyrirtækja á Norðurlöndum er að lýðheilsa hafi forgang á kostnað hagnaðar.

Áfengissala er meiri þar sem ríkiseinkasölu nýtur ekki við.
Áfengissala er meiri þar sem ríkiseinkasölu nýtur ekki við. Mynd: Louis Hansel – Unsplash

Fjöldi verslana og opnunartími þeirra er takmarkaður. Aldurstakmörkunum er stranglega framfylgt, markaðssetningar og afslættir bannaðir. Lögð er áhersla á að áhætta fylgi áfengisneyslu, fremur en að selja það eins og hverja aðra neysluvöru.

Lýðheilsa í fyrirrúmi

„Að hafa lýðheilsu að leiðarljósi við stjórnun áfengissölu á Norðurlöndum er frábært dæmi um áfengisstefnu sem skilar árangri,” segir Dr Carina Ferreira-Borges ráðgjafi hja WHO..

„Minni áfengisneysla er á mann í þeim ríkjum sem hafa einkasölu, en sem svarar meðaltali ESB-ríkjanna. Almennt er tíðni áfengistengdra sjúkdóma á borð við lifrarsjúkdóma, krabbameins og hjarta- og lungnasjúkdóma minni þar sem einkasala er ríkjandi, og sama gegnir um slys og drukknanir sem rekja má til áfengisneyslu.”

Léttvín.
Léttvín. Mynd: Eivind Sætre/norden.org

Blikur á lofti

Þrátt fyrir öflugan stuðning almennings við ríkiseinkasölur og sannanlegan heilsurfarslegan ávinning eru teikn á lofti um að breytingar kunni að vera á döfinni á mörgum Norðurlandanna. Lagafrumvörp sem litið hafa dagsins ljós miða að því að einkavæða áfenegissölu og grafa þannnig undan áratugagömlum árangri í lýðheilsu.

Í Finnlandi hefur til dæmis stór hluti áfengissölu verið leyfður utan ríkiseinkasölunnar. Samráðsferli stendur yfir um að leyfa heimsendingu áfengis. Í Svíþjóð hefur dómstóll til umfjöllunar kæru um að hnekkja einkasölu ríkisins á áfengi á netinu.

„Það kemur stöðugt betur og betur í ljós að það skiptir höfuðmáli um heildarsöluna hvar, hvenær og hvernig áfengi er selt í smásölu,“ segir Dr Carina Ferreira-Borges. „Ríkiseinkasala hefur þau áhrif að minnka áfengisneyslu, en sala einkaaðila hefur tilhneigingu til að auka hana.“

Staðreyndir um áfengi í Evrópu (WHO, 2024):

– Eitt af hverjum 11 dauðsföllum á Evrópusvæði WHO má rekja til áfengisneyslu. Um 800 þúsund eða nærri þriðjungur 2.6 milljóna allra dauðsfalla tengist áfengisneyslu.

-Þetta þýðir að áfengisneysla dregur nærri þrisvar sinnum fleiri til dauða en að meðaltali í heiminum.

–  Um helmingur íbúa á Evrópusvæði WHO býr í Evrópusambandsríkjunum og drekka meira en nokkrir aðrir jarðarbúar. Sjö af tíu drykkfelldustu þjóðunum miðað við höfðatölu eru innan ESB.

Sjá einnig hér.