Úkraína. Mannúðaraðstoð. Rússneskir drónar réðust á „greinilega merkta“ bílalest Sameinuðu þjóðanna á þriðjudag sem var að flytja nauðsynlega hjálp til stríðshrjáðs bæjar í fremstu víglínu í suðurhluta Úkraínu.
„Í dag varð bílalest fjögurra neyðarbíla, greinilega merktir sem tilheyrandi Sameinuðu þjóðunum, sem fluttu hjálp, fyrir árás af herjum Rússlands þegar þeir voru að flytja hjálp til bæjarins Bilozerka í Kherson-héraði,“ sagði Matthias Schmale, mannúðarfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í landinu í yfirlýsingu.
Greinilega merkt
Hjálparstarfsmenn frá Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) voru á leið til svæða sem ekki höfðu notið aðstoðar svo mánuðum skipti.
„Þegar hjálparstarfsmennirnir voru komnir á staðinn hófst öflug fallbyssuskothríð og síðar, við affermingu, voru tveir greinilega merktir vörubílar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) skotmark dróna,“ sagði hann.
„Sem betur fer slösuðust hjálparstarfsmennirnir ekki, en tveir vörubílar skemmdust og kveikt var í þeim.“
Ekki réttmætt skotmark
Vörubílarnir fluttu hreinlætisbúnað, lyf og skjólvörur, sagði Andrea de Domenico, æðsti embættismaður OCHA í Úkraínu.
„Það er afar mikilvægt að (minna) alla aðila á að greiða þarf fyrir flutningum mannúðaraðstoðar og vernda mannúðarstarfsfólk,“ sagði hann.
Schmale benti á að það væri gróft brot á alþjóðlegum mannúðarlögum að mannúðarstarfsfólk og birgðir séu gerðar að skotmörkum og slíkt jafngilti stríðsglæp.
Hann bætti við að „Kherson-héraðið hafi einnig orðið vitni að aukningu í drónaárásum sem skaða óbreytta borgara“.
„Grípa skal til allra ráðstafana til að vernda óbreytta borgara og mannúðarstarfsfólk. Virða verður alþjóðleg mannúðarlög,“ sagði hann.
Mannréttindaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna greindu nýlega frá því að að minnsta kosti 214 óbreyttir borgarar hefðu verið drepnir og næstum 1.000 særðir í Úkraínu í september.
Næstum 70 prósent mannfalls hefur áttu sér stað nálægt víglínunni, einkum í Donetsk- og Kherson-héruðum.
Sjá einnig hér.
