Úkraína. Rússland. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt til þess að bundinn verði endi á dagleg manndráp og eyðileggingu í Úkraínu. Að minnsta kosti fjórtán óbreyttir borgarar voru drepnir í þriggja nátta loftárásum Rússa um helgina.
Þrjú börn voru á meðal hinna látnu, en tugir til viðbótar særðust. Árásir voru einkum gerðar á Kyiv, Kharkiv og Mykolaiv og ýmis önnur þéttbýlissvæði. Úkraínumenn réðust einnig á skotmörk í Rússlandi og særðust að minnsta kosti 11.
Mannréttindastjórinn Volker Türk sagði brýnt að stöðva átökin.
„Það er kominn tími til að binda enda á innrás Rússlands í Úkraínu, að koma á og hrinda í framkvæmd yfirgripsmiklu vopnahlé með það fyrir augum að koma í veg fyrir dagleg manndráp og eyðileggingu; hefja alvöru friðarviðræður með virðingu fyrir alþjóðalögum,“ sagði hann.
Áhrif á börn
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur látið í ljós þungar áhyggjur af síðustu árásahrinu á börn í Úkraínu.
Munir Mammadzade fulltrúi UNICEF í Úkraínu sagði að þrjú börn hefðu verið drepin í þriggja daga árásahrinunni, og ekki færri en 13 verið særð víða um landið.
„Úkraínsk börn hafa þjáðst allt of lengi. Framtíð hve margra til viðbótar þarf að ræna? Þessu vitfirrta ofbeldi og barnadrápum verður að linna,“ sagði Mammadzade.
Að sögn UNICEF hafa ekki færri en 220 börn verið drepin eða særð frá janúar til apríl á þessu ár. Það er 40% fleiri börn en á sama tímabili í fyrra.
„Hætta ber árásum á íbúabyggðir og það ber alltaf að vernda börn,“ sagði Mammadzade. „Umfram allt þurfa börn á því að halda að stríðinu ljúki.“
